Skýjum ofar! 
Jæja.

Þá er orðið langt síðan síðast var bloggað. Eiginlega tvö börn síðan..hehe...

En þessi færsla er eiginilega skráð heimild þess að bloggið hefur verið fært útaf heimilinu (ásamt öðru) og inn á netþjóna í UK.

[ add comment ]   |  permalink  |   ( 2.9 / 21 )
Nýtt blog 
Já sæll!
Stutt síðan seinast var bloggað!

Þá er það nýtt á tækniheimilinu.
Er að vinna í að flytja alla servera á einn HOST og útríma windows alveg af heimilinu!
Gengur vel.
Eldveggurinn var fluttur í dag.
Búið að leggja niður exchange pósthús og færa yfir á zimbra 6 á linux.
Búið að flytja gagnasvæði
Eftir að flytja vefþjóninn og póstgáttarþjón.

Aðal málið er að nú er ég jafnframt að leggja niður VMWare og taka upp KVM virtual machine, jafnframt keyrir allt á 64-bit linux í stað 32-bit.

Það styttist því í 100% open source hugbúnað í klapparhlíðinni!

Bara eftir að taka lappan hjá konunni og henda windowsinu af honum!

[ add comment ] ( 28 views )   |  permalink  |   ( 3 / 251 )
Uppitími á kerfum 
Nú ætti uppitíminn að vera málið.

Búinn að færa vefina á nýjan þjón og nýtt stýrikerfi.

Guess what. It was easy.

Heavy sáttur við hversu einfalt það var að færa mysql gagnagrunninn. Alveg fáránlega einfalt.

Ég stoppaði mysql á gömlu vélinni.

Ég færði gagnagrunnskrárnar

Ég ræsti mysql á nýju vélinni

komið.

Ég gat opnað mysql> prompt og byrjað að selecta...

Alveg 2 ára munur á útgáfum even.

[ 1 comment ] ( 16 views )   |  permalink  |   ( 3 / 282 )
Are you a-FRAID 
FRAID stendur fyrir Fake-RAID - öfugt við HW RAID.

Kemur í ljós að rauðhattarlinuxafbrigði, t.d. CentOS og Fedora reyna að setja upp FRAID rekla ef að FRAID device er í vélinni (FRAID device er semsagt RAID spjald sem notast við rekil fyrir RAID)

Þetta er sérstaklega satt víst ef að tvö jafn stór hörð drif eru í vélinni.

Gallinn er hinsvegar sá að þetta gerir uppsetningarálfurinn burt séð frá því hvort að FRAID sé stillt í BIOS viðkomandi spjalds eða á onboard controller.


Ég lenti í þessu með Promise spjald, sem ekki var stillt á FRAID, og reynar var ekki með tvo eins diska, þótt annar controller í vélinni hafi verið með tvo eins diska.

Uppsetningin klikkar í skrefinu: findrootpart

Hvað er nú til ráða, segðu nodmraid rosalega hratt. Skrifaðu það svo í uppsetningarlínuna við ræsingu af geisla eða DVD diski og uppsetningarálfurinn mun ekki reyna FRAID.

semsagt: linux nodmraid [text]


---

p.s. betra er að nota linux software RAID en FRAID. Þrátt fyrir að hvurutveggja noti CPU í vélinni, þá er ljóst að FRAID hefur mun verri stuðning í alheiminum, því þar er notast við mis góða rekla.

[ 2 comments ] ( 24 views )   |  permalink  |   ( 2.9 / 258 )
Niðritími á kerfum 
Búast má við truflunum og niðritíma á vefþjónum hjá hýsingarþjónustu ant.is

Verið er að uppfæra miðverk og flyta þjónustur.

If page is not found
don't change your mind
go another round
and soon you should find


[ 2 comments ] ( 12 views )   |  permalink  |   ( 3 / 259 )

Next