Ókeypis partý - heima hjá þér? 
Var að týna saman tómar flöskur í geymslunni og telja í poka. Svona eins og gengur og gerist hjá öllum alvöru fjölskyldum.

Rak augun í haug af umbúðum sem ég kannaðist ekki við að hafa keypt mér. Áttaði mig þá á því að um var að ræða umbúðir hjá fólki sem notið hafði sinna drykkja í mínu heimahúsi.

Kreppupartý:
Bjóddu fólki í party. Bannaðu alla drykki nema þá sem eru forblandaðir í flöskum og/eða dósum.

Ef meðal partý-ljónið drekkur 6 einingar, þar með talið þú. Þú drekkur 6 einingar af eðal drykk, sem kostar 252 krónur. Þá þarft þú 1512 krónur til fjármögnunar. Það jafngildir skilagjaldi af um 150 einingum. Það gefur okkur 150/6 = 25 gesta partý!

Ójá. Allir gestir umfram það eru hreinn gróði.

[ 1 comment ] ( 4 views )   |  permalink  |   ( 2.9 / 36 )
Stýrivextir 
Hæ,

Hér er skematísk mynd yfir stýrivexti.

Eins og sést þá er mesti vöxtur stýrisins líklega undir 25% af hring. EF að vextir eru of nálægt 25% fer það sem er á stýrivöxtunum í mjög krappa hringi sem getur valdið því að það sem á hengur hendist fyrir borð.

Miklu betra er að taka víða hringi. Minni líkur á að menn detti fyrir borð.



[ 2 comments ] ( 10 views )   |  permalink  |   ( 3 / 15 )
Síld 
Það er ljóst að fleirra fólk er að fara að éta síld. Það er því ljóst að fleirra fólk verður á "síld"

Ætla má að jafnvel verði við því búist að nýtt síldarævintýri líti dagsins ljós.

Þvílík síld.





[ 1 comment ] ( 5 views )   |  permalink  |   ( 2.9 / 19 )
Á leið í íslenska fökkið 
Undirritaður hefur nú setið sveittur við þjálfun í RHEL í Burlington MA (rétt utan við Boston).

Þetta hefur verið þétt, en nett, dagskrá. Þar sem "lágfargjalda" flugfélagið Icelandair er að sjálfsögðu með ódýrasta ferðatímma, þá þurftum ég og ferðafélagi og samstarfsmaður minn KIII að "eyða" 9,5 klst. Við fórum á rúntinn, en komumst fjótlega að því að einna "nettasti" verslunar og "eyða tíma" kjarninn var einmitt í Burlington.

Við fórum því æsings snemma á flugvöllinn. Þar var 1,5 klst af "bið" eftir því að geta checkað inn.

Svo var það beint í Priority pass herbergið (þegar það var loks fundið).

Situm hér í nettum stólum og horfum á TV og hömumst á netinu.

Það er nú svo glæislegt að ég á eftir $500 af gjaldeyri. Nice. Ætli maður geti keypt 1-2 sparisjóði þegar maður kemur heim?

[ add comment ]   |  permalink  |   ( 3 / 16 )
Peningar og krónur 
Rosalega er ég feginn að eiga ekki neina peninga.

Þeir sem eiga peninga núna tapa þeim í löngum bunum. Það er frábært að vera meðalmaðurinn sem ekkert á!

[ 1 comment ] ( 10 views )   |  permalink  |   ( 3 / 16 )

Next