CentOS 
Ég ákvað að forvitnast meira en ég vissi um stýrikerfið CentOS.


Í stuttu máli. CentOS Project tekur Redhat Enterprise Linux (sem kostar péninga) og býr til CentOS. Allar (security even) uppfærslur koma 24-48 tímum á eftir þeim rauða.

Allar þjónustur, svosem uppfærslu o.s.frv. virka.

CentOS er (á að vera) 100% binary compatible við rauðhatt.

CentOS 5 er í support til March 31st, 2014

CentOS er vinsælasta rebuildið af redhat. Þess má geta að t.a.m. Oracle er með rebuild, sem það svo selur uppfærslu-support fyrir.
http://en.wikipedia.org/wiki/Red_Hat_Enterprise_Linux

Alalvega. CentOS fyrir leikskólan eða Redhat fyrir háskóla!



[ add comment ]   |  permalink  |   ( 2.9 / 51 )
Ókeypis partý - heima hjá þér? 
Var að týna saman tómar flöskur í geymslunni og telja í poka. Svona eins og gengur og gerist hjá öllum alvöru fjölskyldum.

Rak augun í haug af umbúðum sem ég kannaðist ekki við að hafa keypt mér. Áttaði mig þá á því að um var að ræða umbúðir hjá fólki sem notið hafði sinna drykkja í mínu heimahúsi.

Kreppupartý:
Bjóddu fólki í party. Bannaðu alla drykki nema þá sem eru forblandaðir í flöskum og/eða dósum.

Ef meðal partý-ljónið drekkur 6 einingar, þar með talið þú. Þú drekkur 6 einingar af eðal drykk, sem kostar 252 krónur. Þá þarft þú 1512 krónur til fjármögnunar. Það jafngildir skilagjaldi af um 150 einingum. Það gefur okkur 150/6 = 25 gesta partý!

Ójá. Allir gestir umfram það eru hreinn gróði.

[ 1 comment ] ( 4 views )   |  permalink  |   ( 2.9 / 36 )
Microwave fontar 
http://www.oooninja.com

Nokkuð fín grein um microsoft fonta og hvernig í raun óheiðarlegur aðili getur sett nýju vista/office2007 fontana á t.d. linux vélina sýna. Svo að hægt sé að skoða efni sem skrifað er í umræddum fontum.


En, eitt sem ég vill benda á. Vinsamlegast reynið eftir fremsta megni að nota opensource fonta við t.d. framsetningu á vefsíðum og í skjölum sem þið búið til. Það er víst allra hagur.


[ 1 comment ] ( 7 views )   |  permalink  |   ( 2.9 / 40 )
mount eða já takk! 
Algjör snilld hvernig linux skráarsvæðin eru uppsett.

Enn meiri snilld er hvernig hægt er að tengja alla hluti með linkum og mountpúnktum.

Þar sem maður er nú að vinna í "mixuðu" umhverfi þá er gott til þess að vita að í linux nútímans er hægt að nota mount.cifs eða mount -t cifs, til að mounta windows share inn í linux skráarsvæðið. Allt í linux er júi skrá...

Sjá dæmi hér
mount -t cifs //servername/share /mnt/dir -o user=antons[@domain]

Gott er líka að vita að endurræsing á windows þjóni hefur ekki áhrif (nema á meðan þú ert að náttúrulega að nota svæðið)

Hægt er að nota umount eða umount.cifs til að aftengja


Einnig er hægt að nota skipunina með "-o credentials=filename"

I skránni "filename" getur maður haft username=anton@domain.is og password=*secret*

Maður svo náttúrulega takmarkar aðgang að skránni þannig að hún haldist leynd

Þá er hægt að nota tengingu í command line án þess að eiga á hættu að lykilorðið sé sýnilegt öllum eða einhverstaðar.


Sniðugt ekki satt þessi lænús

[ add comment ]   |  permalink  |   ( 3.1 / 23 )
Stýrivextir 
Hæ,

Hér er skematísk mynd yfir stýrivexti.

Eins og sést þá er mesti vöxtur stýrisins líklega undir 25% af hring. EF að vextir eru of nálægt 25% fer það sem er á stýrivöxtunum í mjög krappa hringi sem getur valdið því að það sem á hengur hendist fyrir borð.

Miklu betra er að taka víða hringi. Minni líkur á að menn detti fyrir borð.



[ 2 comments ] ( 10 views )   |  permalink  |   ( 3 / 15 )

Back Next