Are you a-FRAID 
FRAID stendur fyrir Fake-RAID - öfugt við HW RAID.

Kemur í ljós að rauðhattarlinuxafbrigði, t.d. CentOS og Fedora reyna að setja upp FRAID rekla ef að FRAID device er í vélinni (FRAID device er semsagt RAID spjald sem notast við rekil fyrir RAID)

Þetta er sérstaklega satt víst ef að tvö jafn stór hörð drif eru í vélinni.

Gallinn er hinsvegar sá að þetta gerir uppsetningarálfurinn burt séð frá því hvort að FRAID sé stillt í BIOS viðkomandi spjalds eða á onboard controller.


Ég lenti í þessu með Promise spjald, sem ekki var stillt á FRAID, og reynar var ekki með tvo eins diska, þótt annar controller í vélinni hafi verið með tvo eins diska.

Uppsetningin klikkar í skrefinu: findrootpart

Hvað er nú til ráða, segðu nodmraid rosalega hratt. Skrifaðu það svo í uppsetningarlínuna við ræsingu af geisla eða DVD diski og uppsetningarálfurinn mun ekki reyna FRAID.

semsagt: linux nodmraid [text]


---

p.s. betra er að nota linux software RAID en FRAID. Þrátt fyrir að hvurutveggja noti CPU í vélinni, þá er ljóst að FRAID hefur mun verri stuðning í alheiminum, því þar er notast við mis góða rekla.

[ 2 comments ] ( 19 views )   |  permalink  |   ( 2.9 / 116 )
Niðritími á kerfum 
Búast má við truflunum og niðritíma á vefþjónum hjá hýsingarþjónustu ant.is

Verið er að uppfæra miðverk og flyta þjónustur.

If page is not found
don't change your mind
go another round
and soon you should find


[ 2 comments ] ( 6 views )   |  permalink  |   ( 3 / 131 )
VMWare 2.0 on CentOS 
Jæja. Nú er ég sáttur.

1. Installaði DVD útgáfu af CentOS með svona minimal pökkum

2. Keyrði yum update (reyndar kom strax eftir login "you have 50 new updates")

3. Náði í vmware 2.0 rpm pakka

4. rpm -iv pakkinn.rpm

5. vmware-config.pl

6. yes yes yes yes amen yes - valdi betri http og https port

7. hin vélin - browser - yes amen

8. scp og færði virtualvélina eldvegg

9. start og run - yes I moved that machine - og whola

Total time : 1.5 hours

10. Ef að þú ert að lesa þetta - þá virkar þetta enn

mórall: Þar sem vmware er með góðan stuðning við rehdat, er hann jaframt jafn góður við CentOS.

p.s. mér finnst vmware 2.0 mjög fínt. Nokkuð svipað og AIX á powerpc virtual dæmið -- bara ekki eins mikið af möguleikum.

[ 1 comment ] ( 6 views )   |  permalink  |   ( 3 / 100 )
CentOS 
Ég ákvað að forvitnast meira en ég vissi um stýrikerfið CentOS.


Í stuttu máli. CentOS Project tekur Redhat Enterprise Linux (sem kostar péninga) og býr til CentOS. Allar (security even) uppfærslur koma 24-48 tímum á eftir þeim rauða.

Allar þjónustur, svosem uppfærslu o.s.frv. virka.

CentOS er (á að vera) 100% binary compatible við rauðhatt.

CentOS 5 er í support til March 31st, 2014

CentOS er vinsælasta rebuildið af redhat. Þess má geta að t.a.m. Oracle er með rebuild, sem það svo selur uppfærslu-support fyrir.
http://en.wikipedia.org/wiki/Red_Hat_Enterprise_Linux

Alalvega. CentOS fyrir leikskólan eða Redhat fyrir háskóla!



[ add comment ]   |  permalink  |   ( 2.9 / 51 )
Ókeypis partý - heima hjá þér? 
Var að týna saman tómar flöskur í geymslunni og telja í poka. Svona eins og gengur og gerist hjá öllum alvöru fjölskyldum.

Rak augun í haug af umbúðum sem ég kannaðist ekki við að hafa keypt mér. Áttaði mig þá á því að um var að ræða umbúðir hjá fólki sem notið hafði sinna drykkja í mínu heimahúsi.

Kreppupartý:
Bjóddu fólki í party. Bannaðu alla drykki nema þá sem eru forblandaðir í flöskum og/eða dósum.

Ef meðal partý-ljónið drekkur 6 einingar, þar með talið þú. Þú drekkur 6 einingar af eðal drykk, sem kostar 252 krónur. Þá þarft þú 1512 krónur til fjármögnunar. Það jafngildir skilagjaldi af um 150 einingum. Það gefur okkur 150/6 = 25 gesta partý!

Ójá. Allir gestir umfram það eru hreinn gróði.

[ 1 comment ] ( 4 views )   |  permalink  |   ( 2.9 / 36 )

Next