Að vera sofandi eða hvað? 
Það er fallegur morgun. Fyrir utan rigninguna. Ég er staddur upp í Úthlíð í sumarbústað, maður tekur náttúrulega slíkt ekki í mál nema eftir að þetta 3G dæmi kom.

En hvaða rugl. Vakna fyrir sjö!! Það er svona þegar maður er orðinn gamalla kall

[ 3 comments ] ( 24 views )   |  permalink  |   ( 3 / 57 )
ClamAV definitions 
Það er ekki nægilegt að vera með vírusvörn ef að hún er gömul :)

Eldri blog færlsa hjá mér gaf þó rétta uppsetningu.

hægt er að skrifa clamscan --version til að sjá hvaða útgáfa er virk.

til að stilla sjálfvirka uppfærslu skaltu skoða skránna /etc/clamav/freshclam.conf

Sjálfgefna stillingin er að skoða 24x á sólahring hvort ný definition skrá sé til staðar.

Þrællinn loggar í
/var/log/clamav/freshclam.log


[ 6 comments ] ( 42 views )   |  permalink  |   ( 2.9 / 68 )
Mail graylisting - með postfix 
Graylist setup on postifx - ubuntu 7.10

Graylisting er snilld. Það virkar í stuttu máli þannig að ef að einhver sem að er fyrst "að hefja" póstsamskipti við þig í gegnum graylisting þjón lendir í smá síun. Hann fær "retry" kóða frá póstþjóninum og þarf því að tengjast aftur svo að tölvupósturinn komist til skila.

Þetta er gott gegn SPAM. Flestir sem ætla að senda þér SPAM munu nefnilega einungis reyna einusinni, ef þeir fá eitthvað annað en ok, ok, ok, frá póstþjóninum þá hætta þeir við. Allir alvöru póstgaurar (eins og ISP-inn þinn er með) þeir munu reyna að endursenda póstinn.

Ef þú ert með eigin postfix póstgátt, þá er neðangreind aðferð góð fyrir þig.

Ég ákvað að hafa þetta uppsett einungis á backup MX þjóninum

Read More...
[ add comment ]   |  permalink  |   ( 2.9 / 56 )
ClamAV á póstgáttina 
Það vill enginn stuðla að því að notendur hans fái vírus í pósti. Ein leðin er að hafa vírusvörn jafnframt því að blokka óæskileg viðhengi.

Neðangreindar leiðbeiningar reyndust virka vel á ubuntu 7.10 með postfix uppsettu.

að sjálsögðu tek ég enga ábyrgð, en þó má geta þess að ég las mig nokkuð til við gerð þessa kafla..

Read More...
[ add comment ]   |  permalink  |   ( 3 / 42 )
Linux - vmware server - timesync 
Eitt trikk til að samstilla tíma á vmware sýndar þjón í linux skeljarham við móðurtölvu (e. host)

1. Installa vmware tools í sýndarþjóninn.
2. Stilla vmware toools.
Vandamálið hér er að í skeljarham er ekki tól til að keyra samstillingu. Einfaldasta leiðin er að hakkast í .vmx skránni. Tryggja að lína sem hér sést sé til staðar:
tools.syncTime = "TRUE"
Svo er bara reboot á þjóninn.

Það er almennt talið betra að keyra vmware-timesync heldur en að láta sýndarþjóninn uppfæra klukkuna í gegnum tímaþjóna (windows time eða ntp). Ef að kveikt er á windwos time service á windows þjóni vinnur hún á móti time sync í vmware tools. Þar sem ekki er raunverulegur gjörvi í sýndarvél er erfitt að reikna tíman rétt, þannig er besta leiðin að láta vmware tools sjá um að halda klukku á sem réttasta róli.


[ add comment ]   |  permalink  |   ( 3 / 44 )

Back Next