Fjólubláir draumar 
Thursday, March 26, 2009, 14:38 - nörd
Ég las athyglisverða spurningu (og svar) í bók sem ég á um litinn fjólubláan. Spurningin var eitthvað á þá leið af hverju liturinn fjólublár væri tengdur við kóngafólk. Svarið var nú vegna þess að það litarefni var sjaldgæfast og aðeins þeir ríkustu höfðu efni á fatnaði og klæðum í þeim lit. Það sem mér fannst kannski merkilegra er að sá fjólublái litur (sem nafnið purple kemur frá) er töluvert rauðari en við tengjum við týpískan fjólubláan lit. Það var talað um að fjólublái liturinn væri sami litur og blóð. Svipað og klæðnaðurinn á þessari mynd hér fyrir neðan.



Þetta er í raun litur sem maður myndi líklegast bara kalla dökkrauðan eða eitthvað svipað. Núna er þessi litur kallaður tyrian purple eða imperial purple. Ég nenni ekki að fara frekar út í litapælingar en mér fannst þetta a.m.k. athyglisvert.
4 comments ( 28 views )   |  permalink   |   ( 2.9 / 107 )

hundrað armbeygjur 
Tuesday, January 27, 2009, 22:42 - nörd
Þótt ótrúlegt hljómi þá var ég á facebook um daginn og rakst á 'what are you doing'-dótið hjá kunningja mínum þar sem stóð 'hundredpushups.com - er alvarlega að pæla í þessu'. Ég var forvitinn og kíkti á þessa síðu http://hundredpushups.com. Þetta er einfaldlega sex vikna prógram sem endar með því að maður á að geta tekið 100 armbeygjur í röð. Maður á bara að þurfa að gera nokkur armbeygjusett þrisvar í viku. Mér fannst þetta hljóma athyglisvert þannig að ég skellti mér bara beint á þetta. Tók svona initial test og gat þá 22 armbeygjur. Þar sem ég náði yfir 20 armbeygjum mátti ég sleppa vikum eitt og tvö og byrjaði því á viku þrjú. Þetta er svo búið að ganga ágætlega, er að fara að klára viku fjögur á morgun og tek svo annað test. Það mun ákvarða hvort ég sé nógu góður til að fara upp í viku fimm eða hvort ég þarf að endurtaka viku fjögur. Það verður spennandi. Þetta er annars búið að vera massaerfitt og ég virðist varla losna við harðsperrurnar eftir hverja æfingu! Lauma kannski inn hérna status-update hvernig mér gekk í testinu...
6 comments ( 46 views )   |  permalink   |   ( 3.1 / 81 )

Epic win í póker... 
Friday, January 23, 2009, 15:29 - nörd
Ég var í póker á miðvikudaginn og vann á svo epic hátt að ég varð að skrifa um það. Ég mætti á fyrsta pókermót Dauðaspaðans sem gestaspilari. Gekk alveg ágætlega frá byrjun og vann stóru hendurnar sem ég fór inn í. Svo enduðu ég og Haukur tveir eftir. Eitthvað gekk þetta fram og til baka hjá okkur þangað til hann fór loksins all-in á hönd sem hann fékk.
Hann var með ás-sjöu en ég með ás-kóng. Hann ekki ánægður og vonast eftir sjöu.
Floppið kemur: Ás, tía, þristur. Ekki hjálpar það honum.
Tía kemur í turn-inu. Staðan: Ás, tía, þristur, tía. Við báðir segjum ennþá 'ekki tía og ekki sjöa'.
Riverið kemur... sjöa! Fokk! Við hendum spilunum frá okkur og sættum okkur við að hann vann. Ég klæði mig í jakkann og er að fara heim þegar Gaui, sem hélt giggið, kom af klósettinu og sagði: "bíddu strákar, voru ekki tvær tíur í borðinu? Þá er þetta split pot.."
Ég hugsa mig um og geri mér grein fyrir því að þetta var ekki split pot, heldur vann ég höndina. Vúhú!
Sem betur fer vorum við ekki búnir að ganga frá spilapeningunum svo við gátum sest niður og haldið áfram. Ég endaði svo á því að vinna þetta. Fokking sweet.



2 comments ( 11 views )   |  permalink   |   ( 3 / 35 )

Stapp 
Wednesday, January 14, 2009, 22:42 - nörd
Ég var aðeins að pæla. Þegar ég er að labba úti í snjónum þó er ég með svona kæk sem ég næ ekki að losna við. Þegar ég er búinn að labba á snævi þaktri jörðu og kem svo að hluta með engum snjó á, þá stappa ég alltaf til að ná snjónum af skónum. Sama þó að þessi auði blettur sé bara nokkrir metrar. Algjörlega tilgangslaust, en samt gerir maður þetta af einhverri ástæðu. Ég líka tekið eftir því þegar aðrir gera þetta. Get alveg trúað því að þetta sé issue hjá fleirum.

Anyways, pælingar hættar...
1 comment ( 5 views )   |  permalink   |   ( 3 / 35 )

Draugatitringur 
Tuesday, January 13, 2009, 16:03 - nörd
Shit, ég er alveg að drulla upp á bak hérna. Ekki nógu mikil hressleiki í gangi hér!

Anyways, ég var að pæla í því hvað það er fyndið þegar maður fær svona draugatitring. Þá er ég að tala um það að maður heldur að síminn manns sé byrjaður að hringja (titra). Ég hef oft lent í þessu og fannst það einmitt sérstaklega fyndið þegar ég fór með hendina og leitaði eftir símanum þegar ég var í sundi. Frekar spes. Annars lendi ég alveg fáránlega oft í þessu við einar ákveðnar aðstæður, þegar ég er nýsestur í bílinn minn. Alveg furðulegt, næstum alltaf þegar ég er sestur upp í bíl finnst mér eins og ég finni að síminn sé að byrja að hringja.

Annars er svona það helsta á döfinni hjá mér að ég og Þorleifur vinnufélagi minn erum að fara í fótboltaferð til Liverpool um mánaðarmótin. Þar erum við að sjá Liverpool og Chelsea spila á Anfield. Ég var svona að vonast til þess að Chelsea myndi vinni Man Utd um helgina svo þetta yrði toppslagur, en svo fór nú ekki. Hins vegar var verið að bjóða okkur að sjá annan leik í leiðinni. Við stukkum á það og erum því að sjá Man Utd - Everton á Old Trafford. Maður nær því að sjá þrjú efstu liðin í deildinni þessa helgi. Það verður sweet.

Svo snurrar maður eins og brjálaður í min Skalle þegar Familjen kemur til landsins.
3 comments ( 23 views )   |  permalink   |   ( 3.2 / 31 )


Next