Hva, ekkert að frétta? 
Thursday, November 13, 2008, 16:07 - tilkynningar
Ég er búinn að vera frekar latur við að blogga upp á síðkastið. Kannski aðallega vegna þess að það er lítið búið að gerast hjá mér. Það eru aðallega eftirfarandi sem ég er að gera þessa dagana:

vinna, fóbó, karfa, horfa á fóbó, horfa á körfu, horfa á þætti, djamma, hlöllabomba, sofa.

Ekkert svo sem að þessu, en ég fer að koma einhverju hressu hérna inn við tækifæri.

Þarf til dæmis að taka mynd af 'the hand of Sauron' sem birtist á jakkanum mínum. Mjög athyglisvert það.

Annars virðast enn fleiri blogg vera að deyja þessa dagana svo maður verður að halda upp heiðri bloggara. Baldur er næstum alveg hættur og Guðný líka. Palli tekur einn og einn skurk og Tommi er löngu hættur. Skúli og Hildigunnur eru nokkuð dugleg, Jói Ben laumar inn færslum og svo eru K-III og Anton með Linux-blogg.

Jæja, þetta kemur...
7 comments ( 27 views )   |  permalink   |   ( 3 / 15 )

Afmælishressleiki 
Thursday, October 2, 2008, 13:25 - tilkynningar
Af því tilefni að ég verð ógeðslega gamall og ógeðslegur á morgun (3. okt) ætla ég að halda upp á minningu hins unga og hressa Kristjáns á laugardaginn. Ég reikna með einstökum hressleika og ótakmörkuðum unaði. Ég lenti í því að týna símanum mínum seinustu helgi þannig að ég er kannski með einhver gömul og vitlaus símanúmer. Endilega hafið samband ef ykkur langar að kíkja, ég yrði glaður að sjá ykkur.

/K
3 comments ( 24 views )   |  permalink   |   ( 2.9 / 88 )

Kominn aftur 
Thursday, November 29, 2007, 10:05 - tilkynningar
Jæja, þá er ég kominn aftur frá Edinborg og London. Útskriftin gekk bara vel. Ég fékk töff skikkju til að vera í ásamt lausri hettu, sem ég mátti ekki setja strax á. Í athöfninni var nemendum raðað í sæti í þeirri röð sem þeir fengu skírteinið svo þetta var allt mjög smooth. Ég var mjög sáttur að ég var sá eini í minni deild sem útskrifaðist 'with distinction' og var kallaður á undan hinum. Ég rétti þá gaur hettuna, fór niður á hné á þar til gerðan hnékrjúpupúðastall, rektorinn bankaði í hausinn á mér með einhverri gamalli húfu, óskaði mér til hamingju og tók í hendina mér. Svo setti gaurinn sem ég rétti hettuna, hana á mig og ég labbaði og fékk skírteinið. Fiss bamm búmm. Sweet. Freyðivín og stuð eftir allt þetta. Jei!

Í Edinborg borðuðum við góðan mat, drukkum gott vín og versluðum eitthvað. Horfði svo eitthvað á fótbolta, m.a. England tapa fyrir Króatíu, Liverpool hakka Newcastle í sig og Eið Smára og félaga vinna Recreativo.

Á sunnudeginum fórum við svo til Glasgow þar sem skildust leiðir. Ég tók flug til London til móts við Bergþór, núna fyrrverandi vinnufélaga minn, og British Airways. Mamma, pabbi og Helga lentu í því að flugið þeirra frestaðist um rúmar fimm klukkustundir á meðan ég flaug og var kominn á hótelið í London.
Í London (eða réttara sagt við Heathrow - þar sem ég fór ekkert í bæinn) var ég á stöðugum fundum frá 9-17 báða dagana sem ég var þar. Dálítið þreytandi til lengdar en samt fínt að hitta fólkið sem ég mun vinna með þarna hjá BA.

Núna er ég svo kominn heim og það eru að koma jól. Vúhú!



3 comments ( 19 views )   |  permalink   |   ( 3 / 31 )

Edinborg og London 
Wednesday, November 21, 2007, 00:03 - tilkynningar
Er farinn til Edinborgar ásamt Helgu, mömmu og pabba til að taka á móti plagginu mínu frá skólanum og fagna útskrift. Svo flýg ég einn á sunnudag til London þar sem ég mun funda með British Airways ásamt starfsfélaga mínum. Kem svo heim seint á þriðjudagskvöldi.
- Jón Bæjó
4 comments ( 40 views )   |  permalink   |   ( 3.1 / 33 )

Jei 
Monday, October 8, 2007, 23:46 - tilkynningar
Jæja,

afmælisveislan var hörkuskemmtileg. Fullt af hressu fólki sem mætti og vil ég þakka þeim kærlega fyrir komuna.
Ég er byrjaður í nýrri vinnu. Skrifaði undir samning á föstudag og byrjaði í dag. Fyrirtækið heitir Calidris og sér um bókanir fyrir flugfélög. Við sjáum um að höndla yfirbókanir, tvíbókanir og þvíumlíkt. Virkar mjög áhugavert starf. Ég mun verða account manager eftir töluverða þjálfun þarna. Þeir eru með samninga við nokkur flugfélög og má m.a. nefna Emirates, British Airways, Finnair, Icelandair, Austrian Airlines og fleiri. Það býður upp á athyglisverðar vinnuferðir til t.d. Hong Kong, Dubai, Jórdaníu og fleiri spennandi staða.

Næstu helgi er Oktoberfest á Íslandi. Stefni á að troða mér í lederhosen og vera töff. Er líka búinn að kaupa mér bratwurst pulsur til að muncha með. Úje!
7 comments ( 45 views )   |  permalink   |   ( 3 / 26 )


Next