Bíó og classic woo 
Thursday, April 14, 2005, 13:32 - tónlist
Fór í bíó í gær á myndina Shi mian mai fu eða House of Flying Daggers eins hún heitir á ensku. Hún er eftir sama leikstjóra og gerði myndina Hero með Jet Li (sem var geðveik mynd). Þessi mynd er dáldið í sama dúr hvað varðar stíl og var einfaldlega mjög flott. Plottið var líka nokkuð gott, enda hefur gaurinn gaman að því að koma áhorfendum á óvart. Eitt sem gæti kannski farið í taugarnar á fólki er það að bardagarnir eru oft frekar 'crouching tiger hidden dragon'-legir með vírum og artistic. Mér persónulega fannst það bara kúl. Sem sagt smooth mynd og mæli ég með henni.

Síðan fékk ég sendingu frá Amazon um daginn. Innihélt hún:

Simpsons Season 5
Complete Pluto - Volume 1
Mickey Mouse in B/W vol. 2
Looney Tunes - Golden Collection vol. 2
Complete Weird Cartoons
Better Tomorrow I og II

Þetta er að vísu eiginlega allt teiknimyndir og flest pre-60's sem ég hef mest gaman af. En síðan ákvað ég að skella mér á Better Tomorrow 1 og 2, en það eru myndirnar sem gerðu John Woo og Chow Yun-Fat fræga og eru myndirnar miklir áhrifavaldar í spennumyndum 10. áratugarsins. Horfði á Better Tomorrow I og var hún mjög fín, sérstaklega ef maður miðar við að hún er frá 1986. Ef ég man rétt þá er seinni myndin með einu mest massacreatriði í lok myndarinnar þar sem myndast risastór hrúga af vondukallabodies => awesome!
Þessar 'weird cartoons' eru síðan ekkert weird en mig langaði aðallega í það sett því það er ein Alice-teiknimynd sem eru teiknimyndir sem Walt Disney gerði áður en hann byrjaði með Mikka mús.
Ég hef sem sagt tonn af teiknimyndum til að glápa á núna. Boo-yah!
2 comments ( 27 views )   |  permalink   |   ( 3.1 / 132 )

Spencer sýnir lit. 
Wednesday, April 13, 2005, 08:28 - nörd
Jæja, það hlaut að koma að því. Palli er loksins búinn að freta upp síðunni sinni sem hann er búinn að liggja á síðan í nóvember á seinasta ári (já, nóvember!). Mæli með því að kíkja á hana því það er fullt af skemmtilegu dóti að skoða þar svo ekki sé minnst á skemmtilegt fyrsta menu. Svo allir kíkja á pallragnar.net.

Djöfull var ég annars ósáttur við Chelsea í gær. Ákvað að veðja á leikinn til að vinna mér inn frítt fyllerí en lúðarnir þarna klúðruðu þessu á seinustu 5 mínútunum og töpuðu meira að segja leiknum. Algjörir nöllar! Ætli maður verði ekki að veðja á Liverpool leikinn í kvöld líka... gæti orðið risky, cause those guys tend to suck. Gæti samt veðjað á Juventus sigur og þá vinn ég hvernig sem fer. Ef Juve vinnur þá fæ ég pening en ef Liverpool gerir jafntefli eða vinnur þá komast þeir áfram... hmmmm...
3 comments ( 33 views )   |  permalink   |   ( 3.1 / 136 )

Lúðaprumpustigagetraun/þraut. - 15 STIG 
Tuesday, April 12, 2005, 09:56 - tilkynningar
Skúli var allt of fljótur að rústa léttu getrauninni þannig að ég ætla að setja hugsanlega erfiðari getraun, þó það er alltaf hægt að finna shortcuts.

Ég vil fá að vita username og password inn á þessa síðu.

Hún er hluti af þraut sem byrjar hér.
Þetta er svona "view source" þraut og ætlast ég til að fólk leysi einfaldlega þrautina þangað til það kemst á þessa síðu (sem ég er kominn á).
Þið fáið ekki að vita hvaða level þetta er þannig að það sé aðeins erfiðara að googla þetta beint. Have fun
15 prumpustig í boði. 15 segi ég!
11 comments ( 66 views )   |  permalink   |   ( 3.1 / 113 )

Prumpustigagetraun 
Tuesday, April 12, 2005, 09:20 - tilkynningar

Getraunin er í nokkrum liðum. Samtals 8 stig í boði.

1. Hvaða leik/söngkona er þetta? (1 stig)
2. Hvaða persónu er hún að leika þarna? (1 stig)
3-4 Úr hvaða tveimur nöfnum er það nafn blanda af? (4 stig)
5. Hver lék karakterinn sem fyrri hluti nafnsins kemur frá? (2 stig)




4 comments ( 34 views )   |  permalink   |   ( 2.9 / 108 )

Bús-staðarferðin 
Monday, April 11, 2005, 21:01 - bugl

Fór í bústaðaferð með Guðnýju, Antoni, Theó, Benna og Mörtu um helgina. Frekar róleg ferð en overall helvíti skemmtileg. Ég virðist ennþá vera superhuman, þ.e. verð ekki þunnur, næstum sama hvað ég drekk mikið kvöldið áður. Er alveg að fíla það nokkuð vel! Það var alveg nokkuð um fín flipp í ferðinni. Ég pullaði gott grín um laugardagsmorguninn þar sem ég fór á fætur kl. "14:30" og fékk mér að borða og svona og var að pæla í af hverju enginn væri farinn á fætur. Þegar ég lagðist aftur upp í rúm og kíkti á klukkuna fattaði ég að hún var öfug á hendinni og klukkan var í raun 8:00. Djöfull var það feitt lúðalegt en samt fyndið! Horfði síðan á nýjasta South Park þáttinn þar sem baseball liðsmenn voru alltaf að tala um að cream-a hitt liðið. Seinna um kvöldið var ég literally creamed í góðu flippi. Það má sjá á myndinni hérna. Þetta sama kvöld var örugglega sett Íslandsmet í heitapottssetu. Ég held að við höfum setið í 6 tíma samfleytt í pottinum. Good times. Mér tókst að gera þrjá litla skurði í lófann við að gera þrjár tilraunir til að opna flöskubjór sem átti að vera screw on. Classic KRiZ. Skemmtilegt við þennan bústað var að það lágu dyr út frá klósettinu að pottinum. Á þeirri hurð var svona filma sem átti að 'skrambla' það sem var fyrir innan en þess í stað var þetta bara eins og að horfa á fótboltann á ruglaðri sýn. Maður sér alveg um það bil það sem er að gerast og var það valdur góðs gríns þar sem m.a. fólk hélt að ég væri að taka mynd af sjálfum mér að kúka (sem ég geri venjulega bara in the privacy of my own home)! Já, maður kvartar ekki yfir góðum félagsskap, góðum mat, góðu áfengi, góðu flippi, góðu glápi, góðu spileríi og góðum prumpum.

1 comment ( 25 views )   |  permalink   |   ( 3.1 / 108 )


Back Next