Friday, April 15, 2005, 10:26 - tilkynningar

Hvaða tónlistarmaður er þetta?
Engin takmörk á ágiskunum.




( 3.2 / 138 )
Thursday, April 14, 2005, 13:32 - tónlist
Fór í bíó í gær á myndina Shi mian mai fu eða House of Flying Daggers eins hún heitir á ensku. Hún er eftir sama leikstjóra og gerði myndina Hero með Jet Li (sem var geðveik mynd). Þessi mynd er dáldið í sama dúr hvað varðar stíl og var einfaldlega mjög flott. Plottið var líka nokkuð gott, enda hefur gaurinn gaman að því að koma áhorfendum á óvart. Eitt sem gæti kannski farið í taugarnar á fólki er það að bardagarnir eru oft frekar 'crouching tiger hidden dragon'-legir með vírum og artistic. Mér persónulega fannst það bara kúl. Sem sagt smooth mynd og mæli ég með henni. Síðan fékk ég sendingu frá Amazon um daginn. Innihélt hún:
Simpsons Season 5
Complete Pluto - Volume 1
Mickey Mouse in B/W vol. 2
Looney Tunes - Golden Collection vol. 2
Complete Weird Cartoons
Better Tomorrow I og II
Þetta er að vísu eiginlega allt teiknimyndir og flest pre-60's sem ég hef mest gaman af. En síðan ákvað ég að skella mér á Better Tomorrow 1 og 2, en það eru myndirnar sem gerðu John Woo og Chow Yun-Fat fræga og eru myndirnar miklir áhrifavaldar í spennumyndum 10. áratugarsins. Horfði á Better Tomorrow I og var hún mjög fín, sérstaklega ef maður miðar við að hún er frá 1986. Ef ég man rétt þá er seinni myndin með einu mest massacreatriði í lok myndarinnar þar sem myndast risastór hrúga af vondukallabodies => awesome!
Þessar 'weird cartoons' eru síðan ekkert weird en mig langaði aðallega í það sett því það er ein Alice-teiknimynd sem eru teiknimyndir sem Walt Disney gerði áður en hann byrjaði með Mikka mús.
Ég hef sem sagt tonn af teiknimyndum til að glápa á núna. Boo-yah!
Wednesday, April 13, 2005, 08:28 - nörd
Jæja, það hlaut að koma að því. Palli er loksins búinn að freta upp síðunni sinni sem hann er búinn að liggja á síðan í nóvember á seinasta ári (já, nóvember!). Mæli með því að kíkja á hana því það er fullt af skemmtilegu dóti að skoða þar svo ekki sé minnst á skemmtilegt fyrsta menu. Svo allir kíkja á pallragnar.net. Djöfull var ég annars ósáttur við Chelsea í gær. Ákvað að veðja á leikinn til að vinna mér inn frítt fyllerí en lúðarnir þarna klúðruðu þessu á seinustu 5 mínútunum og töpuðu meira að segja leiknum. Algjörir nöllar! Ætli maður verði ekki að veðja á Liverpool leikinn í kvöld líka... gæti orðið risky, cause those guys tend to suck. Gæti samt veðjað á Juventus sigur og þá vinn ég hvernig sem fer. Ef Juve vinnur þá fæ ég pening en ef Liverpool gerir jafntefli eða vinnur þá komast þeir áfram... hmmmm...
Tuesday, April 12, 2005, 09:56 - tilkynningar
Skúli var allt of fljótur að rústa léttu getrauninni þannig að ég ætla að setja hugsanlega erfiðari getraun, þó það er alltaf hægt að finna shortcuts.Ég vil fá að vita username og password inn á þessa síðu.
Hún er hluti af þraut sem byrjar hér.
Þetta er svona "view source" þraut og ætlast ég til að fólk leysi einfaldlega þrautina þangað til það kemst á þessa síðu (sem ég er kominn á).
Þið fáið ekki að vita hvaða level þetta er þannig að það sé aðeins erfiðara að googla þetta beint. Have fun
15 prumpustig í boði. 15 segi ég!
Tuesday, April 12, 2005, 09:20 - tilkynningar

Getraunin er í nokkrum liðum. Samtals 8 stig í boði.
1. Hvaða leik/söngkona er þetta? (1 stig)
2. Hvaða persónu er hún að leika þarna? (1 stig)
3-4 Úr hvaða tveimur nöfnum er það nafn blanda af? (4 stig)
5. Hver lék karakterinn sem fyrri hluti nafnsins kemur frá? (2 stig)
Back Next


Categories



