Tuesday, April 19, 2005, 13:19 - tilkynningar
Hvaða íslenska hljómsveit(/tónlistarmaður) finnst mér vera skemmtilegust?Það þarf ekki endilega að vera ennþá starfandi...
Ég er með ákveðið svar í huga, nema einhver minni mig á eitthvað sem ég fíla betur.
Jafnvel að ég gefi aukastig fyrir ákveðið svar líka.
Mér líst ágætlega á reglurnar sem Anton setti hjá sér, nema með smá modifications.
Það má giska eins oft og þið viljið, en það verða að líða a.m.k. tveir klukkutímar á milli ágiskana.
Laumuprumpustig: 8 prumpustig fyrir þann sem býður mér í eitthvað partý á síðasta vetrardegi




( 3.2 / 122 )
Monday, April 18, 2005, 00:06 - bugl
Fín helgi þessi.Föstudagurinn var í rólegri kantinum þrátt fyrir létta drykkju en þá hitti ég Tomma og Palla. Við ákváðum að hafa þetta brainstorming kvöld fyrir fyrirhugaðan flash sketch. Það gekk bara nokkuð vel og er komið handrit að geðveikum sketch. Eins og ég segi þá var það kvöld bara rólegt annars og var auðvelt að pulla superhuman daginn eftir enda frekar lítið drukkið.
Laugardagurinn var hins vegar þvílíkt hress. Kvöldið byrjaði með sveittum borgara og bjór á Vitabar með Tomma, Palla og Antoni. Þaðan var svo haldið á poolstofuna á Hverfisgötu og tekið poolmót og Skúla bætt í hópinn. Það var friggin' sweet enda þurfti ég ekki að borga fyrir borðið. Annað skemmtilegt sem gerðist þar var að Tomma tókst að setja átta kúlur ofaní í röð en tapa samt! Og Anton fékk ekki einu sinni að gera! (laumaði mynd af Antoni að fagna þeim sigri í myndasafnið).
Eftir þetta var haldið heim til mín og jókst flippið bara meira þar. Alltaf gott flipp með Star Wars hjálmana mína og teknar nokkrar skákir í leiðinni. Tommi gerði það deadly mistake að kaupa doritos og gerði Palli okkur lífið leitt seinna um kvöldið vegna þessa. Tommi trukkaði dáldið og Anton keppti við hann með venjulegum dósum með misjöfnum árangri. Sjónvarpinu mínu var snúið við vegna pirrings á 'the black bars' og Tommi og Palli æfðu sig í deep-throating á stórri Cobraflösku. Mér tókst að sofna/drepast þegar ég var að flýja ilminn hans Palla og tók Tommi forskot á sæluna á vinninginn í prumpustigakeppninni. Palli fékk síðan þá góðu hugmynd að drepast hjá mér og fékk hann síðan sömu meðferð. Tommi toppaði þetta svo allt með því að fara næstum úr öllu og leggjast hjá/ofan á okkur ásamt því að humpa okkur. Við the humping þá vaknaði ég og fór á fætur, kláraði bjórinn minn og við ákváðum að tussast niður í bæ. Þegar á VM var komið voru allir orðnir hressir og sérstaklega eftir að maður var kominn með bjór í hönd. Þegar þar var komið höfðu sem sagt tveir meðlimir tríósins drepist og tveir aðrir ælt fyrr um kvöldið. Kvöldinu var svo sluttað með ferð á PK, which was awesome as usual.
Nokkrar myndir frá kvöldinu má sjá á þessari síðu en myndirnar ná í rauninni ekki að fanga þetta hrikalega kvöld. Það var hins vegar gert með bunch af video-um sem voru tekin á myndavélina. Það var tekið 1,5GB af video-i og eðlilega séð þá get ég ekki sett þau á Netið. Mikið af gullmolum þar og getur fólk fengið að skoða þau þegar þau koma í heimsókn næst.
Sunnudagurinn fór í rólegheit. Horft á DVD í sjónvarpinu, sem fékk second wind eftir snúning helgarinnar, og skipt um dekk á bílnum. Það gekk nú ekkert vel þar sem ég lenti í þvílíkum vandræðum með annað framhjólið sem bara vildi ekki fara af og þar að auki byrjaði að rigna eftir að ég var búinn með eitt dekk. Um kvöldið horfði ég svo á Oldboy, sem er rosaleg mynd. Mæli virkilega með henni. Hún fer beint í safnið, sko!
Friday, April 15, 2005, 10:26 - tilkynningar

Hvaða tónlistarmaður er þetta?
Engin takmörk á ágiskunum.
Thursday, April 14, 2005, 13:32 - tónlist
Fór í bíó í gær á myndina Shi mian mai fu eða House of Flying Daggers eins hún heitir á ensku. Hún er eftir sama leikstjóra og gerði myndina Hero með Jet Li (sem var geðveik mynd). Þessi mynd er dáldið í sama dúr hvað varðar stíl og var einfaldlega mjög flott. Plottið var líka nokkuð gott, enda hefur gaurinn gaman að því að koma áhorfendum á óvart. Eitt sem gæti kannski farið í taugarnar á fólki er það að bardagarnir eru oft frekar 'crouching tiger hidden dragon'-legir með vírum og artistic. Mér persónulega fannst það bara kúl. Sem sagt smooth mynd og mæli ég með henni. Síðan fékk ég sendingu frá Amazon um daginn. Innihélt hún:
Simpsons Season 5
Complete Pluto - Volume 1
Mickey Mouse in B/W vol. 2
Looney Tunes - Golden Collection vol. 2
Complete Weird Cartoons
Better Tomorrow I og II
Þetta er að vísu eiginlega allt teiknimyndir og flest pre-60's sem ég hef mest gaman af. En síðan ákvað ég að skella mér á Better Tomorrow 1 og 2, en það eru myndirnar sem gerðu John Woo og Chow Yun-Fat fræga og eru myndirnar miklir áhrifavaldar í spennumyndum 10. áratugarsins. Horfði á Better Tomorrow I og var hún mjög fín, sérstaklega ef maður miðar við að hún er frá 1986. Ef ég man rétt þá er seinni myndin með einu mest massacreatriði í lok myndarinnar þar sem myndast risastór hrúga af vondukallabodies => awesome!
Þessar 'weird cartoons' eru síðan ekkert weird en mig langaði aðallega í það sett því það er ein Alice-teiknimynd sem eru teiknimyndir sem Walt Disney gerði áður en hann byrjaði með Mikka mús.
Ég hef sem sagt tonn af teiknimyndum til að glápa á núna. Boo-yah!
Wednesday, April 13, 2005, 08:28 - nörd
Jæja, það hlaut að koma að því. Palli er loksins búinn að freta upp síðunni sinni sem hann er búinn að liggja á síðan í nóvember á seinasta ári (já, nóvember!). Mæli með því að kíkja á hana því það er fullt af skemmtilegu dóti að skoða þar svo ekki sé minnst á skemmtilegt fyrsta menu. Svo allir kíkja á pallragnar.net. Djöfull var ég annars ósáttur við Chelsea í gær. Ákvað að veðja á leikinn til að vinna mér inn frítt fyllerí en lúðarnir þarna klúðruðu þessu á seinustu 5 mínútunum og töpuðu meira að segja leiknum. Algjörir nöllar! Ætli maður verði ekki að veðja á Liverpool leikinn í kvöld líka... gæti orðið risky, cause those guys tend to suck. Gæti samt veðjað á Juventus sigur og þá vinn ég hvernig sem fer. Ef Juve vinnur þá fæ ég pening en ef Liverpool gerir jafntefli eða vinnur þá komast þeir áfram... hmmmm...
Back Next

Categories



