Wednesday, May 11, 2005, 16:36 - asparagus
Djöfull er Europris lúðaleg búð. Fór um daginn til að kaupa mér gos í 33cl dósum til að vera með í vinnunni og ákvað að kaupa bara í matinn í leiðinni í stað þess að fara líka í bónus. Ég byrja að tína dót oní kerruna mína en finn samt ekki mjólkurvörurnar. Þegar ég skoða málið frekar finn ég heldur ekkert kjöt, enga ávexti og ekkert grænmeti. Í stað þess er komið endalaust mikið af einhverju rúmfatalagersdrasli. Europris er sem sagt með rúmfatalagersdrasl, nammi, snakk, gos og sósur og eitthvað þannig crap. Heavy lúðaleg búð og mæli engan veginn með henni. *prump*



( 3 / 133 )
Monday, May 9, 2005, 16:33 - bugl
Fín helgi þessi. Föstudagurinn var mjög rólegur og lítið gert annað en að chilla og sofna snemma. Laugardagurinn var strax hressari með tvöfaldri körfu og fréttum um að Palli hefði unnið cointoss-ið upp á vinnu með mér í sumar. Eftir þennan pakka henti ég P-Dog í ríkið og sjálfum mér svo heim. Tommi kíkti og drukkum dáldið þangað til Palli kom (en hann hélt að Tommi væri súr heima hjá sér, grátandi). Palli og Tommi kíktu dáldið í Elmu og meira drukkið. Síðan hélt ég Prumpupopppunkt og náðu Tommi og Palli sér í þónokkur prumpustig þar. Eftir þetta kíktum við í artífartípartí hjá Listaháskólanum og man ég eiginlega ekkert eftir því. Löbbuðum svo niður í bæ og Palli var gabbaður í heimferð. Ég og Tommi kíktum þá á Prikið og chilluðum þar smá. Hittum þar svo Guðnýju og Laufeyju ásamt vibbagaur. Vibbagaurinn var að pulla sjálfan sig og vera vibbi svo ég ákvað að taka hann með mér frekar á barinn í staðinn fyrir að vera vibbi. Tökum smá leikrit hérna: Ég: Jæja, eigum við ekki bara að kíkja á barinn?
Vibbagaur: Jáááááá...
Tiny: Hey, hvað ertu að gera?
Ég: Æji, ég er taka þennan vibbagaur á barinn, hann var að vera einhver vibbi við vinkonur mínar.
Tiny: Hey, þetta er sko enginn vibbagaur, þetta er besti vinur minn!
Ég: ooooh, erm... ehe... við erum sko bara að fara barinn sko, it's all good.
Tiny: Ég held bara að þú ættir að fara!
Ég: við erum bara að fara á barinn, it's all good.
Tiny fer og ég fer á barinn með vibbagaurnum.
Tiny kemur svo aftur.
Tiny: Bíddu, átt þú ekki að vera farinn?
Ég: nei, ég ætlaði bara að fara á barinn, sko..
Tiny fer og kemur svo aftur með gaur sem virkar risastór hliðiná honum. Hann bendir honum svo eitthvað á mig og svo líka á Tomma sem var greinilega með mér. Gaurinn labbar eitthvað að Tomma sem stendur upp og sér þá að 'risinn' var 15 sentimetrum minni en Tommi. Eitthvað lítið fór þeirra á milli en gaurinn fór að minnsta kosti og ég settist bara hjá Tomma með minn bjór. Þetta var bara eitthvað svo silly. Eftir djammið þarna kíktum við Tommi á Pizza King að sjálfsögðu og slöfruðum í okkur pizzu. Á leiðinni heim stoppaði ég að sjálfsögðu á 'leynistaðnum' og tók mandatory mynd af mér og skiltunum og síðan sagði ég myndavélinni sögu í labbinu heim. Þar var mikið um orð eins og "classic", "shit", "fuck you up!" og "æðstistrumpur". Bara fyndið að horfa á þetta daginn eftir. Good times.
Saturday, May 7, 2005, 00:13 - bugl
Jæja, bara kominn annar föstudagur vikunnar. Fyrri föstudagurinn byrjaði ágætlega með hættni (yeah, it's a word!) kl. 16 og kíkt var í snóker niðri í OR. Ég og Antwan tókum þar 4 leiki og laumuðumst þar að auki í bjór með seinni leikjunum. Þegar klukkan var svo að verða 18:30 byrjaði Bjórkvöld STOR og fríi bjórinn! Þar mættu svo Guðný, Laufey og Telma auk Benna og Mörtu seinna. Litla borðið okkar fylltist af fullum bjórflöskum og tómum á engri stundu og var fríi bjórinn ekki lengi að renna niður. Um leið og bjórinn hætti að vera frír og Agressobandið var byrjað að gabba eldra fólkið út á gólfið var feitt kominn tími á beil. Kíktum við upp á 6. hæð í leðrið þar í chill á meðan við kláruðum bjórinn okkar. Tommi bættist svo í hópinn þar sem hann var ridin' eitthvað og var göbbuðum við hann til að kíkja. Eftir eina klósettferðina mína þar mætti ég Securitaz gaurum sem sögðu mér að ég ætti ekki að vera þarna en þar að auki virtust hinir fimm drykkjufélagarnir mínir vera horfnir. Eftir smá íhugun fattaði ég að þau voru auðvitað öll búin að troða sér inn á næstminnsta klósett orkuveitunnar þegar þau áttuðu sig á því að Securitaz gaurarnir væru að koma. Gott grín. Tommi skutlaði svo mér og Tony í tha crib þar sem frekar chillaður pakki var tekinn með smá ElastoMania. Theó kom svo og náði í Anton og Gaylordinn skutlaði mér í bæinn. Kíkti á Prikið og hitti þar Soner brotherfucker ásamt hip hop vinum, límheilanum, Guðnýju, Laufeyju og jafnvel fleirum. Þar var fokkast dáldið, ég og Soner gerðum tvö veðmál og held ég að ég hafi verið nær því að vinna mitt (svona tveimur sentimetrum frá því). Mitt fólst í því að ná að kyssa B-Ruff á munninn, en hann var að DJa þarna þetta kvöld og er þekktur fyrir að panikka við gaydares. Ég pullaði laumutýpuna á hann og teygði mig yfir borðið og fór þetta einhvern veginn svona:"áttu þarna bllaaaalala með dr. Dre?"
"Ha?"
"Æji, ertu nokkuð með blaablaaa með Dre?"
"Ha, hvað segirðu"
"Sko! Áttu nokkuð lalalalalalalalalaaa (tilraun til að kyssa hann á munninn)"
náði sem sagt því miður bara að kyssa hann á rugged 5 o'clock shadow skeggið hans en lil' bro' skemmti sér konunglega yfir þessu sem og ég. Síðan var eitthvað djammað meira og gin og tónik og fleira og kíkt einhvert annað í tvö skipti og bladíbla, man ekki aaaalveg.. Síðan þegar ég labbaði heim (eftir klassíska myndatöku hjá ákveðnu skilti) þá tók ég myndavélina mína um tour um 101 á meðan ég beið eftir því að sólin kæmi almennilega upp. Silly video það og held ég að ég segi orðið "shit" í næstum hverri einustu setningu. Silly shit, that!
Set kannski myndir eða eitthvað shit inn seinna, kannski í kommentin eða eitthvað.
Wednesday, May 4, 2005, 12:25 - nörd
Prófaði sama shit og Baldur og Helgi. Hmmm... veitekki. Frekar svipað og B*kwon fékk út úr sínu. Fáránlegt að pólitík komi þarna efst. Bara stupid. | Your dating personality profile: Liberal - Politics matters to you, and you aren't afraid to share your left-leaning views. You would never be caught voting for a conservative candidate. Adventurous - Just sitting around the house is not something that appeals to you. You love to be out trying new things and really experiencing life. Athletic - Physical fitness is one of your priorities. You find the time to work athletic pursuits into your schedule. You enjoy being active. | Your date match profile: Practical - You are drawn to people who are sensible and smart. Flashy, materialistic people turn you off. You appreciate the simpler side of living. Outgoing - Shy and timid people are not who you are after. You need someone with a vibrant personality to breathe life into a relationship. Adventurous - You are looking for someone who is willing to try new things and experience life to its fullest. You need a companion who encourages you to take risks and do exciting things. |
Your Top Ten Traits 1. Liberal 2. Adventurous 3. Athletic 4. Big-Hearted 5. Practical 6. Romantic 7. Shy 8. Sensual 9. Traditional 10. Funny | Your Top Ten Match Traits 1. Practical 2. Outgoing 3. Adventurous 4. Sensual 5. Athletic 6. Conservative 7. Intellectual 8. Wealthy/Ambitious 9. Romantic 10. Traditional |
Take the Online Dating Profile Quiz at Dating Diversions
Monday, May 2, 2005, 14:48 - bugl
Fín helgi. Rólegur föstudagur. Smá 11-chip með Palla og Skúla uppi í Austó. Helgi bættist svo við og þá breyttist þetta í AND-1 2-2 bolta. Good times. Eldaði svo burgaz fyrir Palla og mig ásamt því að Helgi fékk að elda sína burgaz hjá mér. Horfðum svo á Seinfeld og Ren & Stimpy í góðum gír. Þreytan var eitthvað mikil hjá mér svo ég sofnaði bara frekar snemma enda var vinna hjá mér daginn eftir.Laugardagurinn byrjaði semi með vinnu kl. 8 og vann til tvö, en þá tók ég körfuboltapakkann til fimm. Fínir boltar en þreytan dáldið farin að segja til sín í seinni boltanum. Eftir boltann henti ég draslinu mínu heim og þrusaðist upp í Mosfellssveit til Antons. Þar eldaði hann Anton-style-burgaz og fékk sér bjór með á meðan ég þurfti að sötra áfengislaust gos. Eftir þessa massaborgara keyrði ég okkur niður í siðmenninguna heim til mín þar sem ég hellti í mig bjór í sólinni úti á svölum á meðan við biðum eftir Tomma. Þegar hann loksins kom fórum við í Pool þar sem Anton pakkaði mótinu saman og vann okkur Tomma og þurfti þ.a.l. ekki að borga fyrir poolið. Þetta var að vísu dáldið silly mót því það var geðveikt mikið af leikjum sem kláruðust með svörtu-kúlu mistökum. Eftir þetta var haldið í tha crib og chillað þar með víni og bjór. Eitthvað var staupað og gerð göt á bjórdósir og grínað. Vandræðaleg símtöl voru síðan nauðsynleg og gerð. Síðan hringdi Anton í Dominos og átti 10 mínútna samtal við sölumanneskju þar sem hann fokkaðist í henni með því að tala eins og mongólíti og reyndi að panta 14" tommu pizzur. Mjög fyndið shit. Eitthvað var vangað og eitthvað var farið úr að ofan og eitthvað var sofnað. Eftir pizzuát fór Anton heim og ég niður í bæ. Hitti Guðnýju og Laufeyju á KB og var ákveðið að það átti að reyna að fokka í soner oner sem var að chilla þarna. Það var eitthvað misheppnað en samtalið milli þeirra var eitthvað á þessa leið:
X: Hæ, takk fyrir síðast
M: Ha, bíddu, hver í andsk. ert þú?
X: Æji, ég átti að fokka eitthvað í þér.
Jamm... með þessu þá náði ég að koma sjálfum mér í fokk. Innan tveggja mínútna þá var goth gaur búinn að hvísla að mér "I'm gonna rape you" eða "your mother sucks cocks in hell (plus I'm gonna rape you" eða eitthvað svipað. Eftir KB, þá ákvað ég að kíkja aðeins á VM. Þar heyrði ég DJana segja "bara tvö lög eftir" og tók ég þá eftir dálitlu skemmtilegu. Ég kom mér á góðan útsýnisstað og horfði á dansgólfið. Það var nefnilega mjög gaman að horfa á suma gaurana vera að pulla their secret special dancemoves til að reyna að hrífa gellurnar áður en kvöldið endaði. Mjög skemmtilegt að horfa á! Eftir VM fór í á Prikið og hitti þar fyrir fyrrnefndan Soner og bunch af félögum hans. Þar var ég glimmeraður í framan strax við innkomu og síðan var fokkað eitthvað í mér allan tímann þar. Tekinn í "þekkist þið?" pakkann þar sem Benna B-Ruff var eiginlega fokkað meira upp en mér en hann var heavy vandræðalegur. Síðan fannst einhverri stelpu glimmerið á mér svo spennandi að hún þurfti að rub some on her og var það einhvern veginn bara silly. Eftir meira fokk og dans og fokk ákvað ég að rúlla heim. Laumaðist niður á "mms-staðinn" og sendi nokkur mms. Heim svo og drapst í öllum fötunum, classic.
Dáldil þynnka daginn eftir og lítið gert annað en að sofa og hugsa "djöfull drakk ég mikið í gær". Taldi líka drykkina og fékk út 9-10 bjórar og ein 13% hvítvín, dáldið mikið.. en oft verið verra. Skellti mér svo á blátt Powerade og ostafylltar brauðstangir frá P-Hut. Ekki ánægður með P-Hut þetta skiptið, brauðstangirnar voru bara eitthvað asnalegar, ekki nógu mikill ostur og bara frekar lúðalegar.
Mæti svo til vinnu hérna á mánudaginn og sé þá 5 e-mail í outboxinu mínu sem ég man ekki eftir að hafa sent. Öll send á milli 0:30-1:00 djammkvöldið, m.a. til Jóns Marínós og Matthildar í sölu. Bara rugl, maður er farinn að pulla einhvern OR-Bjarna hérna (eða þ.e.a.s. Anton farinn að pulla..).
Góð vika framundan annars. Bunch af shitti að horfa á, LIV-CHE, fyllerí, þynnka, Hitchhiker's Guide og fleira. Boo-yah!
video verða svo sett í kommentahlutann
Back Next

Categories



