Thursday, May 12, 2005, 17:18 - bíó og tv

Labbaði upp á esjuna í gær í fyrsta skipti. Var ekki einu sinni viss um hvort ég átti að vera með gönguskó, en ákvað að gera það sona til vara. Þegar ég mæti þarna upp á bílastæðið sé ég að allir eru í einhverjum heavy búnaði með bakpoka með mp3 spilara, ísaxir, göngustafi (fáránlega margir með göngustafi), þvílíkar matarbirgðir og tjöld og ég var ekki einu sinni í peysu, bara í gallabuxum, stuttermabol og þunnum jakka. Svo þegar kom á daginn þá rústaði ég þeim öllum og þrusaðist þangað upp bara frekar auðveldlega með ferðafélagar mínir voru bleikir í framan að rembast við þetta. Good times. Mynd af hetjunni á toppnum með 101 í bakgrunn (I can totally see it!). Boo-to-the-mothaphuckin'-yah!




( 2.9 / 116 )
Wednesday, May 11, 2005, 16:49 - tilkynningar
Jæja, það er eitt lag sem er búið að vera að drepa mig upp á síðkastið. Það er eitthvað lag á popp tíví með einhverjum framhaldsskóla og heitir eitthvað svipað og "Bannað að sofa hjá Maríu mey". Þetta lag er sem sagt íslensk útgáfa af erlendu lagi en ég bara get ekki munað hvað lagið heitir og með hverjum það er. Þar af leiðandi er upplagt að setja þetta sem prumpustigagetraun. Í boði eru 15 prumpustig, en þá verður að koma bæði með nafn lags og flytjanda.Wednesday, May 11, 2005, 16:49 - bíó og tv
Chillax er heitasta orðið þessa dagana. Bara svona til að láta ykkur vita.Dæmi um notkun:
"Yo Man, what's wrong with you? Chillax!"
"Yeah, I was just chillaxin' in my crib the other night, when a crazy sheep came and started suckin' on my nuts!"
Wednesday, May 11, 2005, 16:36 - asparagus
Djöfull er Europris lúðaleg búð. Fór um daginn til að kaupa mér gos í 33cl dósum til að vera með í vinnunni og ákvað að kaupa bara í matinn í leiðinni í stað þess að fara líka í bónus. Ég byrja að tína dót oní kerruna mína en finn samt ekki mjólkurvörurnar. Þegar ég skoða málið frekar finn ég heldur ekkert kjöt, enga ávexti og ekkert grænmeti. Í stað þess er komið endalaust mikið af einhverju rúmfatalagersdrasli. Europris er sem sagt með rúmfatalagersdrasl, nammi, snakk, gos og sósur og eitthvað þannig crap. Heavy lúðaleg búð og mæli engan veginn með henni. *prump*Monday, May 9, 2005, 16:33 - bugl
Fín helgi þessi. Föstudagurinn var mjög rólegur og lítið gert annað en að chilla og sofna snemma. Laugardagurinn var strax hressari með tvöfaldri körfu og fréttum um að Palli hefði unnið cointoss-ið upp á vinnu með mér í sumar. Eftir þennan pakka henti ég P-Dog í ríkið og sjálfum mér svo heim. Tommi kíkti og drukkum dáldið þangað til Palli kom (en hann hélt að Tommi væri súr heima hjá sér, grátandi). Palli og Tommi kíktu dáldið í Elmu og meira drukkið. Síðan hélt ég Prumpupopppunkt og náðu Tommi og Palli sér í þónokkur prumpustig þar. Eftir þetta kíktum við í artífartípartí hjá Listaháskólanum og man ég eiginlega ekkert eftir því. Löbbuðum svo niður í bæ og Palli var gabbaður í heimferð. Ég og Tommi kíktum þá á Prikið og chilluðum þar smá. Hittum þar svo Guðnýju og Laufeyju ásamt vibbagaur. Vibbagaurinn var að pulla sjálfan sig og vera vibbi svo ég ákvað að taka hann með mér frekar á barinn í staðinn fyrir að vera vibbi. Tökum smá leikrit hérna: Ég: Jæja, eigum við ekki bara að kíkja á barinn?
Vibbagaur: Jáááááá...
Tiny: Hey, hvað ertu að gera?
Ég: Æji, ég er taka þennan vibbagaur á barinn, hann var að vera einhver vibbi við vinkonur mínar.
Tiny: Hey, þetta er sko enginn vibbagaur, þetta er besti vinur minn!
Ég: ooooh, erm... ehe... við erum sko bara að fara barinn sko, it's all good.
Tiny: Ég held bara að þú ættir að fara!
Ég: við erum bara að fara á barinn, it's all good.
Tiny fer og ég fer á barinn með vibbagaurnum.
Tiny kemur svo aftur.
Tiny: Bíddu, átt þú ekki að vera farinn?
Ég: nei, ég ætlaði bara að fara á barinn, sko..
Tiny fer og kemur svo aftur með gaur sem virkar risastór hliðiná honum. Hann bendir honum svo eitthvað á mig og svo líka á Tomma sem var greinilega með mér. Gaurinn labbar eitthvað að Tomma sem stendur upp og sér þá að 'risinn' var 15 sentimetrum minni en Tommi. Eitthvað lítið fór þeirra á milli en gaurinn fór að minnsta kosti og ég settist bara hjá Tomma með minn bjór. Þetta var bara eitthvað svo silly. Eftir djammið þarna kíktum við Tommi á Pizza King að sjálfsögðu og slöfruðum í okkur pizzu. Á leiðinni heim stoppaði ég að sjálfsögðu á 'leynistaðnum' og tók mandatory mynd af mér og skiltunum og síðan sagði ég myndavélinni sögu í labbinu heim. Þar var mikið um orð eins og "classic", "shit", "fuck you up!" og "æðstistrumpur". Bara fyndið að horfa á þetta daginn eftir. Good times.
Back Next

Categories



