Saturday, May 28, 2005, 22:57 - tilkynningar
Upplagt að lauma inn prumpustigagetraun þegar allir eru busy!Af því tilefni að ég er að skíta á mig yfir nýju Common plötunni ætla ég að hafa Common prumpustigagetraun. OK hún er í tveimur hlutum og ætla ég að gefa 15 stig samtals fyrir hana.
1) Frá hvaða borg er Common? (5 stig)
2) Ég fylgst með Common frá næstum byrjun því ég pantaði fyrstu plöturnar hans þegar þær voru frekar nýjar frá búð í heimaborg hans því það var að hype-a hann upp. Hvaða búð er það eiginlega? (10 stig)
gangi ykkur vel!




( 3 / 161 )
Saturday, May 28, 2005, 22:41 - bugl
Er eins og er á kojufylleríi einn heima með hvítvín í dáldið skrítnum pakka. Svo er mál með vexti að ég 'eiginlega verð' að fara á a.m.k. eitt fyllerí hverja helgi (eða að minnsta kosti einu sinni í viku) vegna mets sem ég er búinn að setja hjá mér. Ég er nefnilega búinn að fara á fyllerí hverja einustu helgi árið 2005 (og á örugglega líka nokkrar inni frá lokum 2004). Þar að auki er ég kominn í þann pakka að ég er búinn að taka myndir af mér með skiltinu góða í xx mörg fyllerí í röð (a.m.k. frá því að ég byrjaði á því...). Þar af leiðandi verður maður að halda þessum streaks gangandi. Eins og er eru bara tveir af vinum mínum á fylleríi, Guðný er í einhverjum þremur boðskortapartýjum og Tommi er á flugvallafylleríi frá DK. Tommi á að lenda rétt fyrir 23 og svo drífur hann sig heim, skiptir um föt, setur á sig minna vonda lykt og drullast hingað með vodkann sinn. Þegar það gerist, þá fáum við okkur rússneskt kókain (útskýrt í kommenti á seinustu færslu) og fokkumst upp eins og feitir vibbakettir (it's the only way to go, yo!). Eins og er verð ég að fokkast eitthvað hérna þangað til þetta gerist. Fékk mér fokking massasterka Daiquiri hjá mömmu og er að klára eina 13% hvítvín í góðum gír.Henti inn nýjum hluta á síðuna. Setti hérna á hliðina "Shittið á fóninum og í bílnum" sem inniheldur shittið sem ég er að hlusta á þessa dagana. Ég á það til að algjörlega nauðga plötum í bílnum og er seinasta platan sem ég gerði það við nýja Common platan. Shit, hvað ég er að fíla hana. Það eru næstum öll lögin góð á henni. Kanye West og Jay Dee produce-a og smella bara heavy vel saman og passa bara mjög vel við rappstílinn hjá Common. Totally fuckin' feelin' it! Mjög jazzy, soulful með sumum insightful rímum frá Common og líka góðum línum eins og "slap you like I'm Rick James, bitch" og fleirum.
Uppáhaldslínan mín úr rapplagi núna er samt bókað "I'm coming without Bruce Lee like the Game of Death" en síðan er línan úr heavy gamla Jay-Z laginu á nýja Chronic mixtapinu ".... harder; you know this niggah, Jay-Z, Sean Carter" alveg líka að gera það núna. Fuck yeah!
Var annars að ná mér í nýju Black Eyed Peas plötuna í fyrradag. Æji, shit. Hún er í svona svipuðum dúr og seinasta plata. Alveg eitt og eitt nokkuð gott lag inni á milli en mér finnst samt eins og þessi induction á Fergie ekki alveg vera að gera sig. Hún er alveg kúl gella og hot jafnvel en ég var miklu frekar að fíla þetta sem þrjá fyrum b-boys að rappa og stundum með gestasöngkonum. Núna er þetta eitthvað svo mikil popphljómsveit og myndböndin eru strax komin á popptíví. Ég man þegar maður sagði bara 'whoa!' þegar maður sá BEP myndband (sem voru oft awesome - því þeir b-boyuðu oft í þeim back in the days).
Þessi BEP umræða minnir mig dáldið á breakdancing. Bara sona smá hip hop fróðleiksmoli fyrir þá sem vita ekki. Alvöru 'breakarar' vilja ekki láta kalla sig breakara heldur frekar b-boys. Síðan tala/töluðu þeir ekku um að breaka heldur um að b-boy-a as in "I was b-boying like crazy at the Roxy last night!". OK, got it! B-boys b-boy like crazy en breakers break like fat vibb-cats!
Shit, djöfull getur maður röflað eftir smá daquiri og eina hvítvín!
Saturday, May 28, 2005, 00:35 - bíó og tv
Ég glugga stundum í myndirnar á skemmtistöðunum sem ég fer á og einhvern veginn finn ég aldrei myndir af mér. Þar að auki finnst mér eins og ég hef aldrei séð neina myndavél í gangi einu sinni þegar ég er á stöðunum. Síðan bara all out of nowhere finn ég bara einhverja mynd af mér, Tomma og Bragðarefnum á Prikinu. Man bara ekki razgat eftir þessu en ég held örugglega að þetta sé kvöldið þegar risinn hans Tiny heilsaði upp á okkur. Djöfull er þetta annars silly mynd. Good times. Ég held að málið sé örugglega einhver mixpakki á morgun. Síðan er stefnan tekin á crazy Star Wars maraþon á sunnudaginn. Það gæti að vísu orðið dáldið erfitt grunar mig enda erum við að tala um 6 myndir (og helst líka Clone Wars líka sem er jafn langt og mynd) sem eru um 2:20 klst. hver. Þetta gerir rúma 16 tíma. Veit ekki alveg með þetta, sjáum til.
Thursday, May 26, 2005, 21:18 - tilkynningar
Af tilefni innkomu nýrra PEZ-kalla í kretínheimana ætla ég að skjóta inn lítilli pez-prumpustigagetraun.Hvaða bragðtegund af pezi er ekki seld í USA en er seld í evrópu (en fylgir þó ekki lengur með pezkölllum!) og af hverju er þessi bragðtegund ekki seld í USA?
4 stig fyrir hvorn hluta, samtals 8 stig.
aukaprumpustig: Allir þeir sem redda mér pezköllum sem mig vantar fá 4 prumpustig fyrir hvern (þarf samt að vera eitthvað sem ég get ekki keypt t.d. bara úti í 10-11).
Thursday, May 26, 2005, 21:08 - nörd
Guðný var að koma frá NY og haldiði ekki að hún hafi tekið áhættu og gert tilraun til að kaupa pezkalla sem ég á ekki. Þegar ég hugsa út í það þá veit ég um engan sem hefur tekist að kaupa pezkall sem ég á ekki. Hún keypti sem sagt fimm pezkalla og átti ég engan þeirra. Boo-to-tha-yah! Fékk tvo hello kitty kalla (kitty with rabbit og My Melody) og svo þrjá star wars kalla (Palpantine, Death Star og General Grievous)
Nokkuð gott og maður verður bara að gefa 4 prumpustig á hvern starwars kall og 3 stig fyrir hello kitty, held ég.
Var annars var við týpískt sona icebreaker samtal í dag. Mest týpískt samtal tveggja aðila sem þekkjast ekkert sérstaklega vel er einhvern veginn sona:
A: Svo... í hvað skóla varstu?
B: M.S.
A: M.S.? Ég þekki gaur í MS. Þekkirðu nokkuð Togga?
B: Togga...? Neeeei... held ekki
A: En hvað með Simma? Hann var sona massaður gaur, sko.
B: ehhhhh...
prumpíprump. Síðan er þetta jafnvel lúðalegra ef B þekkir gaurinn. Prófum það
B: Togga? Já, hann var með mér á ári, en ég þekki hann samt ekkert vel, sko.
A: Jájá, ég þekki hann nefnilega líka, sko.
B: Jahá... hmmmm...
A: já.... haha, góður gaur...
B: jújú... jújú..
Æji þetta bara eitthvað svo steikt. Fólki finnst einhvern veginn svo gaman að það þekki einhvern sameiginlegan gaur. Þá er hægt að tala um þennan sameiginlega gaur eða eitthvað. Tók dáldið vel eftir þessu og bara gerði mér bara grein fyrir því hvað þetta er eitthvað nöllalegt. Hins vegar ef maður er flippari, þá er þetta upplagt tækifæri til að búa til vandræðalegar þagnir, sem er auðvitað bara gott flipp.
Djöfull er ég annars alveg að fara að panta mér eitthvað Star Wars dót. Er búinn að vera skoða seinustu mánuði alls kyns drasl á shop.starwars.com og held ég að ég verði bara að fá mér eitthvað til að hætta að hugsa um þetta. Er mikið að hugsa einmitt um 12" tall pez dispensers, sem er auðvitað mjög töff (sérstaklega fyrir pez- og starwarsnölla eins og mig!).
Back Next

Categories



