Wednesday, June 15, 2005, 14:58 - tilkynningar
ÓJÁ! Keppnin er hafin. Photoshopkeppnin er hafin. Bestu myndirnar fá prumpustig (ég verð að sjálfsögðu dómari í keppninni en allar góðar myndir fá stig, en menn fá bara stig fyrir bestu myndina sína). Ég er ekki alveg búinn að ákveða stigafjölda en ég er að hugsa um að gefa 18 stig fyrir bestu myndina og svo eitthvað minna fyrir hinar.Reglur.
1. Nota einhverja/einhverjar af myndunum þremur sem eru geymdar hér.
2. Allt er leyfilegt og pósta þeim svo bara í kommentin á þessari færslu.
3. Deadline verður mánudagurinn 20. júní kl. 18,
4. Öll tól til að gera myndirnar eru leyfileg
5. Fjöldi mynda frá hverjum einstaklingi er takmarkaður við 14.
Fokkið mér svo upp´
(fyrir þá sem vilja sjá hvernig fílíng þetta getur farið í geta skoðað þessa færslu þar sem mér var fokkað hressilega upp og vakti mikla lukku)




( 3 / 111 )
Monday, June 13, 2005, 14:49 - bugl
Úje, nice helgi þessi. Var ekki viss á föstudaginn hvort ég ætti að kíkja á djammið föstudag eða laugardag og endaði auðvitað með því að taka báða dagana. Á föstudaginn var kíkt til Guðna Bassa í 23 ára afmælið hans. Ég hafði gert 25% sterk Jell-O shots daginn áður og tók ég jell-o-ið með mér. Ég hámaði þetta í mig eins og ég væri að borða bara venjulegt jell-o á meðan flestir meikuðu þetta engan veginn. Tommi náði tökum á þessu þegar hann var búinn að æfa sig smá og síðan voru aðrir sem hámuðu þetta í sig eins og Óðinn. Einmitt þegar ég ákvað að ég væri búinn að borða allt of mikið af jukkinu kom Guðni auðvitað með tequila og maður getur natürlich ekki sagt nei við tequila. Ég henti þessu bara ofan í mig og fór svo í bjórinn og SingStar. Keppti nokkrum sinnum við Palla og aðra. Vann sona yfirleitt en SingStar hetja kvöldsins var samt Palli þegar hann náði þeim áfanga að vera ekki lélegastur í SingStar. Kudos to him! Bærinn var svo tekinn með trukki og Tommi átti góða söngtakta á Hressó þegar hann var að syngja "ég er ekki eins og allar stelpurnar...", þvílík innlifun þar! Ég bara fokkaðist síðan frá þeim eins og venjulega, P, tvær pulsur og vel heppnuð skiltamynd. Myndin sem ég hafði ætlað að taka í langan tíma.Laugardagurinn var sona klassískur. Hékk bara í rúminu og horfði á Transformers í gamla góða sjónvarpinu mínu sem ég náði í úr viðgerð deginum áður. Það var reyndar awesome. Baldur kíkti svo í heimsókn og við náðum í lagið sem er/verður vinsælasta lag í heimi þetta sumar, Gasolina með Daddy Yankee. Þar að auki náðum við í nokkur lög með Don Omar sem er geðveikur playah í Reggaeton senunni. Við kíktum svo heim til Baldurs og Guðnýjar með pizzu og horfðum á Super Mario Bros. Sú mynd átti sína spretti sem voru mjög góðir en var samt einhvern veginn overall frekar silly. Hlustuðum smá á Don Omar og skelltum okkur svo með Palla og Ragnhildi til Dabba í innflutningspartý. Þar vakti Daddy Yankee MIKLA LUKKU hjá þeim svo höfðu verið í Dóminíkanska lýðveldinu í útskriftarferð en mjög litla lukku hjá þeim sem höfðu aldrei heyrt þetta áður. Held að ég sé sá eini sem fílaði lagið og hafði ekki heyrt það á skemmtistað áður. Disknum var hent yfir í annan garð, bjargað, spilaður meira, reynt að brjóta hann, bjargað, spilaður, falinn af gestgjafa. Bærinn var svo tekinn með trompi þar sem ég og Baldur fullkomnuðum turn-point-squat-clap dansinn (sem er byggður á þessu dóti) . Baldur æstist dáldið í þessum snúningum og byrjaði að slá fólk í geðveikt hröðum snúningum og uppskar mismikinn fögnuð viðstaddra. Við fengum okkur svo pulsur og gerðist Baldur fyrsti gestaljósmyndari í skiltamynd aðallega því hann er sá eini sem hefur meikað að djamma með mér svona lengi. Svo var það bara heim og sofa og muncha daginn eftir. Overall góð helgi.
Hendi inn svo crazy skiltamyndum inn á kommentin
Thursday, June 9, 2005, 21:33 - tónlist
Já, sjónvarpið mitt er eiginlega alveg steindautt. Að minnsta kosti í því skyni að það er engan veginn hægt að horfa á það. Það var frægt fyrir svörtu borðana þvert yfir skjáinn en sumir telja að þetta hafi verið sorgarbönd vegna flóðanna í Asíu. Ég veit annars ekkert um það og tussaði þessu legræpusjónvarpi í viðgerð í dag. Djöfull er þetta líka þungur andskoti, en maður notaði bara taktík og henti þessu í bílinn og beint upp í sjónvarpsmiðstöð. Vonandi verður þetta ekki mjög dýrt því annars fokkast ég upp! Sjónvarpið mitt er annars dáldið komið til ára sinna. Það er frá 1987 sem þýðir að það er eldra en sumir starfsmenn Orkuveitunnar. Það er síðan búið að skipta um fjarstýringar held ég a.m.k. þrisvar sinnum og er ég að nota aðra fjarstýringu því ég er með multiremote. Núna verð ég þá að treysta á góðmennsku annara á að bjóða mér í heimsókn að horfa á myndir og sjónvarp. Ætla einmitt að snake-a mér yfir til m&p á eftir og glápa á dvd og checka kannski á leiknum í nótt (ef hann er sýndur á þýsku stöðvunum). Annars var ég þarna hinum megin um daginn og kíkti á þýska MTV og gerði mér grein fyrir því hversu ég saknaði þess. Enda kynntist ég Absolute Beginner, Freundeskreis, Fettes Brot, Fünf Sterne Deluxe, Eins Zwo, Deichkind og fleirum snillingum í gegnum það. Sá samt smá þýskt rapp en það virtist vera komið útí einhverjar silly pælingar, einhver blanda af Missy Elliot og sona bresku hröðu 'holla holla' rappi. Eitthvað steikt.Var áðan að búa til vodka jell-o shots. Fékk mér nefnilega seinustu helgi og fannst snilld. Samt læðist einhvern veginn að mér sá grunur að þetta eigi eftir að vera vibbi hjá mér. Setti þetta bara 50/50 vatn og 50% vodki svo þetta er 25% sterkt shit. Ég lyktaði aðeins af þessu og fann alveg megalegræpuvibbavodkalykt en kannski verður þetta bara snilld.
Keypti mér svo miða á gamla vininn minn, hann Snoop Dogg í gær og hlakkar þvílíkt til að sjá kallinn. Alveg týpískt samt að þegar ég fer verður allt morandi í einhverjum 14 ára pjöllum og 14-18 ára dellum sem eru samt allir 1.85 að hæð. Fokkit, það verður awesome!
Monday, June 6, 2005, 16:43 - bugl
Þetta var bara fín helgi hjá kallinum. Tökum yfirlit...Föstudagurinn bara nice. Fékk kassa af bjór frá Palla, hætti snemma í vinnunni, mjög gott veður úti svo við skelltum okkur í körfu. Good times þar, hittum svo Helga sem bauð mér í grill 'n' chill hjá sér. Fór þangað og niður í bæ með Jóa Ben. Við fengum þá frábæru hugmynd að klára bjórinn okkar uppi á stallinum þar sem styttan af Ingólfi Arnarsyni er á Arnarhóli. Þar chilluðum við í dágóða stund og fórum svo og djömmuðum eitthvað fram eftir nóttu.
Laugardagur var til þynnku þar sem T&P sýndu tilfinningaleysi sitt með því að beila á mér í þynnkumunch! Ég tók mér bara göngutúr um 101 í þynnkunni og rifjaði upp good old cratediggin'skillz í kolaportinu. Fann mér þrjár nice plötur og gaf Magnúsi megaflotta myndaplötu. Ég frétti svo í gegnum símann að mér hafði verið boðið í afmælispartý einmitt í gegnum komment á þessari síðu svo ég hresstist dáldið við það. Ég ákvað samt til vara að vera þunnur til sona 20:00 en þá hringdi ég í Simma og fékk far með honum í partýið. Þetta var bara good-shit-partý. Ég fékk mér m.a. alvöru Absynth (hvernig sem það er skrifað) frá Lettlandi sem innihélt efnið sem fólk getur ofsjónir af, dáldinn slatta af vodkajelloshots, fancy formúlu-1 kampavín og auðvitað my good friend, beer. Það var líka eitthvað um flipp í þessu partýi og var ég bitinn nokkrum sinnum í bakið og eitthvað þannig. Eitthvað verið að fokkast í mér, en bara all good. Kíkt í bæinn, grand rokk, hb, prikið og eitthvað.
Sunnudagurinn fór í maraþon pakka með Guðnýju. Horfðum á Batman, Batman Returns, Batman Forever, Batman & Robin og að lokum Batman the Movie með Adam West. Ég held að ég hafi fokkað Guðnýju upp með því að sýna henni 'exploding shark' atriðið í Batman the Movie því það atriði er bara of fyndið fyrir sjúklinga að horfa á. Enda frétti ég að 8 manns hefðu látið lífið á Landspítalanum í fyrsta skipti þegar myndin kom út á videospólu.
Að sjálfsögðu tók ég skiltamyndir bæði kvöldin og fannst mér eitthvað sniðug pæling að taka sona tribute-myndir þessi tvö skipti. Fyrra skiptið ætlaði ég að reyna að ná Telmu-svipnum og seinna skiptið reyndi ég að ná Tomma-svipnum. Síðan tók ég bónusmynd hjá Landspítalaskiltinu sem var einstaklega vel heppnuð: Sundmaðurinn heitir hún.
Skiltamyndirnar verða inni í kommentunum því það er svo skrull sniðugt (Já, skrull!)
Friday, June 3, 2005, 19:32 - bugl
Já, það er töluvert um bjór hérna heima hjá mér núna.Ég keypti mér tvær kippur og tvo litla Egils Premium seinustu helgi og drakk bara tvo bjóra af þeim öllum (en auðvitað annað í staðinn..) þannig ég á eftir 12 bjóra þar. Í dag fékk ég svo kassa af bjór (24 stk. - svo Tommi skilji líka) frá Palla fyrir vinnureddinguna. Þegar það var óljóst að Palli myndi vinna með okkur í sumar veðjaði ég svo við Anton upp á tvo bjóra að Palli myndi fá vinnuna, svo ég fæ tvo bjóra þar. Síðan kíkti ég í körfu með Skúla, Tomma og Palla í dag sem var awesome. Tapaði bara einum leik, tók nokkur AND-1 moves (sérstaklega eitt á Skúla) og svo fór þetta í veðmál í lokin. Þar vann ég 4 litla bjóra af Skúla og eru þeir núna komnir í hús. Samtals er þetta komið í einhverja 42 bjóra sem ég á! Þetta er náttúrulega bara rugl! Ég var að hugsa um rólega helgi en ég bara verð að létta aðeins á þessu! Ég og Skúli hittum Helga í kringum ríkið Eiðistori þegar Skúli var að kaupa bjórinn fyrir mig og var okkur bara boðið í grillpartý sem ég stefni á að kíkja á eftir sturtu, bjór og kannski smá Tanqueray & Tonic. Keypti mér nebblilega Tanqueray í dag því ég verð að eiga það til þegar Snoop kíkir í heimsókn til mín eftir tónleikana.
Back Next

Categories



