Giskuprumpustigagetraun 
Friday, July 22, 2005, 10:39 - tilkynningar
Ég hef alltaf verið dáldið skó-kall og finnst gaman að kaupa mér og vera í töff skóm. Það er alveg kominn tími á prumpustigagetraun svo nú eigið þið að giska hvað ég á mörg skópör (ég tel ekki með nokkur mjög gömul skópör sem eru niðri í geymslu hjá mér..) þannig að þetta eru skópör sem ég nota (flest) frekar reglulega. Leyfilegur fjöldi giska er ótakmarkaður en takmarkast við eitt gisk á dag. Fjöldi prumpustiga í boði er 10. Getið nú!

Hvað á ég mörg skópör?

Bónusstig: Nefnið sem flest af þeim (lit og tegund) og fáið 1 fyrir hvert skópar.

25 comments ( 113 views )   |  permalink   |   ( 3 / 112 )

Chromeo 
Thursday, July 21, 2005, 16:59 - bíó og tv
Damn, Chromeo er að gera góða hluti hjá mér þessa dagana. Kynntist því í gegnum Noem Oner og hef verið hooked síðan. Náði mér svo í alla plötuna og fíla hana bara nokkuð vel. Uppáhaldslagið mitt með Chromeo hefur verið Needy Girl og einhvern veginn hefur allt sem töff lag þarf: Groovy lag, vocoder rödd, scratching, setninguna "yeah, whateva!" og fleira. Uppáhaldslagið hans Palla af þessari plötu er hins vegar Woman Friend sem er helvíti töff líka og er uppáhaldið mitt þegar orðið 'Friend' er sagt í því, enda er það einhvern veginn dáldið súrt. Síðan að lokum er það lagið Since You Were Gone sem ég kalla bara tölvuleikjalagið því það minnir mig ógó mikið á eitthvað tölvuleikjalag.
Chromeo minnir mig dáldið á svona Les Rythmes Digitales eða DMX Krew tónlist og þá kannski frekar DMX Krew vegna 80s söngsins. Fyrir þá sem ekki þekkja DMX Krew þá er það einn gaur sem gerir tölvupopp með electrobrag. Hendi inn líka einu DMX Krew lagi: 17 Ways to Break my Heart. Þetta lag er alveg classic þó kannski flestir fatti ekki alveg af hverju þetta er kúl, enda skilja fáir DMX Krew við fyrstu hlustun.


add comment   |  permalink   |   ( 3 / 94 )

Quad var að gerast... 
Tuesday, July 19, 2005, 15:53 - bíó og tv
Bombaði inn skiltamyndum seinustu helgar (þau skipti sem ég fór í bæinn) og setti þær inn á glænýjan hluta síðunnar sem heitir einfaldlega 'Skiltamyndir'. Þetta er allt hérna á hægri hönd fyrir neðan linkana mína. Ég var sem sagt að kópera loksins allar skiltamyndirnar mínar úr símanum og henti þeim á þessa síðu. Missionið er svo að bæta inn hinum skiltamyndunum sem voru teknar á canon myndavélina mína líka. Helgin var annars fín overall, hún gengur undir nafninu 'The Quad'. Byrjaði á tremmakvöldinu, svo kom tremmafyllerí sem varð að venjulegu fylleríi, svo venjulegt fyllerí og svo sveitt Snoop Dogg fyllerí í lokin sem var svona á mörkunum á að vera fyllerí. Highlights include Tremminn, ég að spila á þverflautu, ég að misnota Trukkalessuna tvisvar, b-hole pælingar, juicin' & ginin', Snoop að segja "I love you guys..." "love is a strong word you know...", Snoop að tala um að koma til Íslands 6 sinnum á ári, sveittustu hoochie mamas Norður-Evrópu, Snoop að taka "mínus sex" lagið, þynnka fjóra daga í röð og auðvitað Libby.

Horfði annars á Citizen Kane í gær, sem hluta af top250 missioninu mínu. Bara allt í lagi mynd, Orson Welles mjög góður í henni og mjög töff myndataka og skot. Næstu myndir á listanum hjá mér eru Casablanca og Rear Window, en ég held að ég hef bókað séð þær báðar, en man bara ekkert eftir þeim.

Annars er bara Chromeo málið þessa dagana. Tek smá review eftir að ég er búinn að hlusta betur á plötuna þeirra.

Er svona að gæla við það að bjóða fólki yfir til mín um verzlunarmannahelgina. Við Baldur vorum að rifja upp hvað það var awesome í fyrra að sé jafnvel pakki að endurtaka það. Síðan fattaði ég að ég á enga svuntu fyrir tomma til að vera í eins og í fyrra en datt okkur sú snilldarhugmynd í hug að hafa kannski bara svuntuþema þetta árið. Gæti verið góð pæling... kemur í ljós...
add comment   |  permalink   |   ( 3 / 102 )

Kúka 
Saturday, July 16, 2005, 21:08 - bugl
Var að horfa á gamla Hitchcock klassík áðan, North by Northwest með Cary Grant í aðalhlutverki. Fín mynd og er hluti af missioninu mínu að sjá sem flestar myndir á imdb top 250, a.m.k. þær sem eru ekki wack. Tók einmitt líka Citizen Kane og the Dictator með Chaplin ásamt einni silly mynd sem mig hefur langað að sjá lengi, Airplane II - The Sequel. Mér fannst nú dáldið lúðalegt af afgreiðslustelpunni að þekkja ekki Citizen Kane þegar ég spurði hana hvort þau ættu hana. Hún sagði síðan "bíddu, citizen kane? Hvernig er það skrifað? S-I-D...?" og fékk hún nokkur lúðastig þá. Anyways, Cary Grant í North by Northwest, hann er major player maður! Auðvitað á old school hátt, en samt enginn spurning að hann er heavy player enda fór player alert-ið á fullt þegar ég horfði á myndina. Nokkuð smooth línur eins og

Gella: Well, I'm a big girl..
Cary Grant: Yes, in all the right places...
gellan fellur algjörlega fyrir honum


Síðan fannst mér líka eitt mjög töff við myndina en það er það að aðal vondi kallinn heitir Vandamm svo er augljóslega eitt af mest töff vondukallanöfnum í heimi, kannski á eftir Keiser Söze, Mendoza (sem er í geðveikt mörgum myndum) og Hans Grüber (sem er líka í nokkrum myndum).

Jæja, mission að fokkast meira upp í kvöld. Er að hita upp með smá hvítvíni og er að horfa á top 10 at ten á mtv, dance anthems. Nokkur megalög þar eins og "Unfinished Sympathy" sem er eitt mest töff lag allra tíma og megasilly myndband við "Love Story" með Layo & Bushwacka... mjög kúl shit. Jæja, best að fokkast sér upp.... oooohhhweeee!
add comment   |  permalink   |   ( 3 / 97 )

Megatremmi 
Friday, July 15, 2005, 16:36 - bugl
Ég ákvað að henda út seinustu færslu þar sem ég nenni ekki að horfa á hana enda er seinasta kvöld orðið bara að slæmri minningu ásamt deginum í dag líka. Það var frábært kvöld þar til í lokin þegar vitleysingum tókst að eyðileggja kvöldið. Með því að gera það þá særði a.m.k. ég ákveðna aðila og ætla ég ekki að fara nánar út í þetta kvöld. Því meira sem ég reyni að útskýra eða afsaka þetta því meiri rugl kem ég mér í, finnst mér. Þar af leiðandi bið ég þessa aðila einfaldlega afsökunar.
add comment   |  permalink   |   ( 3 / 88 )


Back Next