Thursday, September 8, 2005, 22:40 - nörd
Ég er búinn að komast að því að maður gerir ekkert án þess að það sé þjónustubeiðni á verkinu. Þar af leiðandi er ég búinn að innleiða þjónustubeiðnakerfið hérna heima og geri ekki neitt nema ég sé búinn að gera þjónustubeiðni á það. Þar er líka eitthvað góð tilfinning að bara ganga í eitthvað eitt ákveðið verk og bara klára það því þá er ein beiðni búin. Er búinn að klára fjórar beiðnir í dag og stefni á að klára nokkrar á morgun. Missionið hjá mér er að vera búinn með flestar beiðnirnar mínar í lok næstu viku. Þá get ég farið að einbeita mér almennilega að ógeðskólanum. Annars er ég bara að bíða eftir að úrin mín komi til landsins. Er ennþá svona að vona að Equalizer úrið komi fyrir helgi en á samt ekki von á því. Hlakkar til að fikta í því. Planið fyrir helgina er annars að fara í vísó á morgun í Rafhönnun. Eftir hana liggur leiðin í frían bjór á pravda í boði verkfræðideildar. Þegar fríi bjórinn er búinn veit ég ekkert hvað ég geri. Ef einhverjir stuðboltar verða í stuði geta þeir heyrt í mér og kíkt til mín eða eitthvað í old school vísó stemningu. Það var nefnilega eiginlega alltaf sami pakkinn sem við tókum fyrstu árin í verkfræðinni. Fyrst var droppað bjór heim til mín, svo brunað í vísó, eftir hana labbað heim til mín, kíkt í kjallarann til mín, drukkinn bjórinn sem var komið með fyrr um daginn, tussast niður í bæ, pulsa borðuð, farið heim. Good times, enda meikaði fólkið sem var allan tímann niðri í bæ eftir vísó yfirleitt ekki að vera lengur en til miðnættis eða mesta lagi til þrjú. Annars ætlaði Hez eitthvað að heyra í mér þessa helgi því foreldrar hans og Palla fara út úr bænum. Það átti svona kinda að vera mission hjá mér þessa helgi að djamma ekki báða dagana... hmmm....




( 3.2 / 66 )
Tuesday, September 6, 2005, 21:42 - nörd
Djöfull er maður mikill flippari. Var að panta mér tvö úr. Annað þeirra verður afmælisgjöf og hitt er bara flipp.Fyrst varð maður að fá sér old school LED úr. Þá er ég að tala um LED úr, en ekki LCD úr eins og urðu vinsæl í kringum 1980. Þessi LED úr voru the hottest thing since sliced bread á áttunda áratugnum og mundi ég einmitt eftir svona úri úr Bond mynd (Live and Let Die - 1973) og hefur lengi langað í svona. Jæja, þetta er a.m.k. úrið sem ég pantaði mér:
Geðveikt töff LED úr
Þegar ég var að skoða þetta úr ákvað ég samt að leita og gá hvort ég gæti fundið meira töff LED úr. Þá datt ég inn á síðuna tokyoflash.com og fann þar alls kyns töff og freaky úr. Það sem er meira töff er að þetta eru öll limited edition úr og mjög spes. Mér leist vel á nokkur þeirra en ákvað að skella mér á Equalizer - High Frequency módelið.
Eitt annað úr fannst mér geðveikt töff en á sama tíma geðveikt silly en það er Active Reactor úrið. Það er bara svo silly að það er fáránlega kúl. Ég sýndi Antoni þessi úr og auðvitað gabbaði ég kallinn til að skella sér á Active Reactor-inn. Þannig að ég og Anton verður pimpin' large með crazy japönsk úr á næstunni.
Monday, September 5, 2005, 22:48 - asparagus
Fékk í póstinum í dag stórt umslag sem ég opnaði og sá að í var auglýsing frá BMW umboðinu á Íslandi um nýjan 5 dyra BMW bíl. Ég skil ekki hvernig þeim datt í hug að senda mér þessa auglýsingu. Er ég í alvörunni líklegur til að fara að kaupa mér BMW bíl núna, fátækur námsmaður? Fór samt geðveikt að pæla hvar þeir fengu nafnið mitt til að senda þetta. Gæti það verið því ég á bíl, eða kannski tengt einhverju drasli sem ég skráði mig í? Þeir kannski sáu mynd af mér þegar ég var með mottu og álitu að ég hlyti að vera major player high roller eða eitthvað. Veit ekki, fannst þetta bara eitthvað asnalegt...Thursday, September 1, 2005, 12:03 - nörd
Djöfull er ég sáttur.Kominn í helgarfrí.
Fékk sendingu frá Amazon í gær. Fullt af skemmtilegu dóti, m.a. Matrix safnið, simpsons season 6, meira Ren&Stimpy, nokkrar gamlar 80's Garfield teiknimyndir, Seinfeld season 4 og að lokum allar Sin City bækurnar. Ú-to-the-motherfuckin'-Je!
Svo er það bara vísó á föstudaginn og svo er laugardagurinn opinn for whatever en ég held að ég verði bara að taka Matrix-maraþon á sunnudaginn enda er ég orðinn helvíti spenntur fyrir þeim myndum eftir að ég fékk pakkann.
Annars er stefnan að kíkja til Danmerkur í kringum mánaðarmótin sem verður awesome, stefnir í megapartý þar (Tommi, Palli, KRiZ, Helga, Baldur og Rafnar), bara alveg eins og sumarið 2004.
Tuesday, August 30, 2005, 18:47 - asparagus
Er veikur núna. Frekar wack. Smitaðist í Harry Potter maraþoninu og er næstum öll fjölskyldan í Búlandi búinn að fokka sér upp. Baldur er samt örugglega búinn að lenda verst í þessu enda kúkandi með munninum og pissandi með rassinum. Ég lét mér nægja að pissa með rassinum og bara vera veikur. Er búinn að vera uppi í rúmi að svitna á fullu og láta mér líða illa. Alveg ömurlegt hvað manni getur leiðst þegar maður er einn heima veikur og meikar ekki að horfa á sjónvarpið. En ég nenni ekki að bitchast meira enda eru komnar gleðifréttir frá DK. Tommi (aka Lata pandan) er bara kominn með blogg enda er það óskráð regla að allir sem flytja út þurfa að vera með blogg svo maður geti frétt af fylleríunum sem maður missir af þarna úti. Linkurinn á Tomma er hérna hægra megin en fyrir trega er hann hérna líka: http://latigaurinn.blogspot.com/ .Þá þarf Palli bara að gera slíkt hið sama (sem og Ögmundur)...
Back Next


Categories



