Sunday, September 25, 2005, 18:48 - bugl
Helgin var bara í rólegri kantinum. Kíkti í awesome vísindaferð á föstudaginn. Fínn bjór, fín pizza. Gleymdi símanum mínum þannig að ég kíkti heim að ná í hann. Pullaði súran gaur og var að spjalla drukkinn á msn. Tókst svo ásamt Kisa að gabba Balla á djamm. Þeir komu svo ásamt fríðu föruneyti og var djammað hér. Kíkt í bæinn. Ég og Baldur hittum bandarískar stelpur sem m.a. sögðu mér að "the Reykjavik girls are nicer than the Akureyri bitches". Ég sagði þeim þá að vísu að "the Reykjavik bitches are pretty much the same as the Akureyri bitches". Þynnka daginn eftir en kíkt svo á völlinn með Helga þar sem við horfðum á Valsmenn taka Frammara í fínum leik í góðu veðri. Awesome! Fór svo út að borða með Magnúsi, Erni hálfbróður og pabba á Ítalíu. Þegar við vorum að labba út af staðnum sáum við einhvern fullan gamlan kall við Nike búðina, heyrðist hann meira að segja eitthvað "Leifs..." svo ég sagði við Magnús "Hey, þessi gaur var að kalla eitthvað á þig". Magnús sagði eitthvað í gríni eins og "ohh shit, ég meika ekki að hitta þennan gaur, sérstaklega þegar hann er svona fullur.". Síðan þegar við löbbum framhjá honum kemur hann og faðmar pabba sem segir á móti "Blessaður gamli kammerat" eða eitthvað svipað. Þegar svo við hinir erum komnir smá í burtu og pabbi reyndi að losna við hann öskrar gamli kallinn eitthvað "Djöfulsins fíflið þit!" og byrjar svona eiginlega að öskra/gelta í áttina að okkur "STOPP!". Megatremmi!
Ég og Baldur kíktum svo á 40 Year Old Virgin. Ég hafði dáldið miklar væntingar til hennar þar sem ég sá að hún var að fá nokkuð hátt á imdb og fólk virtist mjög ánægt með hana og mér fannst hún sko aldeilis standa undir þeim væntingum. Awesome mynd! Er alveg uppi þarna með There's Something About Mary og þannig myndum.
Rólegt kvöld svo með smá sjónvarpsglápi en endaði svo með því að taka smá rúnt með Guðnýju sem virtist hafa tapað í drykkjuleik á móti Father Time. Good times.
Framundan:
Fimmtudagur 29. sept.: Vibbapróf í MOS í skólanum
Föstudagur 30. sept.: Farið til Danmerkur.
Mánudagur 03. okt.: Afmælið mitt - hálfþrítugur! (OMFG!)
Föstudagur 07. okt: Oktoberfest
??? Afmælishátíð mér til heiðurs (Annað hvort daginn eftir Oktoberfest (8. okt eða helgina eftir það - fer eftir hvort hentar flestum betur. Kemur í ljóst..)
Þetta þýðir að ég verð að gera eitthvað gott flipp þessa seinustu daga á meðan ég er ennþá ungur. Hmmm...




( 3.3 / 95 )
Wednesday, September 21, 2005, 23:02 - nörd
Jæja, Skúli klukkaði mig. Ég las bloggið hans og hugsaði á meðan "jæja, það er a.m.k. enginn búinn að klukka mig. Djöfulsins rugl er þetta" og auðvitað klukkaði hann mig. Jæja, ég veit ekkert um þetta nema það sem skúli skrifaði um það:...En ég las einmitt í DV úrdrætti í dag (einhver bloggpistla úrdráttur) að einhver klukkuleikur væri í gangi. Eftir því sem mér skilst þá á ég að segja frá fimm staðreyndum um mig.
Jæja, þá koma hérna einhverjar 5 staðreyndir um mig:
1. Alltaf verið dáldið íþróttagaur og prófað að æfa ýmsar íþróttir (mislengi að vísu). Meðal annars má nefna (hugsanlega í tímaröð): fimleikar (sem innihélt meira að segja Ballett), fótbolti, handbolti, sjálfsfróun, badminton, körfubolti og lyftingar. Hef samt haft gaman að fullt af öðrum íþróttum, m.a. keilu, pool, snóker, skíði, snjóbretti, tennis, shuffleboard, snakeboarding og örugglega meira.
2. Fæddist í Reykjavík, bjó fyrst um sinn á Sólvallagötu, flutti fljótlega út á Seltjarnarnesi og bjó á Vallarbraut til 1985, fluttum þá á B80 þar sem ég bjó til 2003 eða þar til ég flutti hingað á Mímisveg 2a.
3. Er alveg fáránlega mikill tónlistarfíkill. Hef samt farið langan veg í tónlistaráhuga. Má í raun búa til þróunarsögu hjá mér: popp =>rokk, hip hop => trip hop, ninja tune dót, jazzfunksoul => drum & bass, þýskt hip hop => house => clicks & cuts, ambient. Á hátt í 1000 geisladiska, kringum 400 vinylplötur og marga tugi GB af tónlist á tölvunni. Samdi eitthvað tónlist líka sjálfur (aðallega í gamla góða FastTracker). Spilaði á einum síðdegistónleikum hins hússins, gaf út tvo geisladiska fyrir MR sem innihéldu m.a. nokkur lög eftir mig og Ella vin minn og samstarfsfélaga í bunch af lögum.
4. Hef unnið á ýmsum stöðum. Tökum ferilinn: Kerrustrákur og fleira hjá Hagkaupum, unglingavinnan, unglingavinnan í fjöldskyldu- og húsdýragarðinum, vinna við viðhald á tækjum í sumargríni ÍTR, ýmis tölvu- og gagnavinnsla hjá Flugleiðum, vaktmaður á varahlutalager hjá Flugleiðum, verkamannavinna hjá Ístaki m.a. við Sultártangavirkjun, merking gönguleiða á Nesjavöllum fyrir OR, forritun fyrir Flugkerfi, merking gönguleiða á Nesjavöllum fyrir OR, uppsetningar og notendaþjónusta á tölvudeild OR.
5. Seinasta staðreyndin verður bara stutt, silly og einföld: Ég hef aldrei verið klipptur af konu.
Þá verður maður að klukka einhverja. Ætli ég klukki ekki bara Tomma, Baldur og Guðnýju. Kannski að eitthvað þeirra nenni að gera þessa vitleysu.
Wednesday, September 21, 2005, 22:15 - nörd
Tantraþursinn stóð sig svo sem sæmilega. Missti af fyrri hluta þáttarins en sá samt eitthvað smá spjall við Tantraþursinn. Var dáldið að vonast eftir því að hann myndi tala um seiðinginn sem myndaðist hjá honum. Jæja, verð bara að senda honum sms og spyrja hann nánar út í þetta eða eitthvað.Horfði á fyrstu tvo þættina af the o.c. áðan með Guðnýju. Byrjar bara nokkuð vel. Nýir karakterar byrja bara ágætlega. Erum með svona þrjár megintýpurnar: the creepy plotting one, the big mean one og the rival bitch.
Var annars að ná í fyrsta þáttinn í 3. seríu af Arrested Development áðan og svo er fyrsti þátturinn í seríu tvö af L O S T í kvöld úti í USA. Næ í hann á morgun. Get ekki beðið!
Næst á dagskrá hjá mér er annars vísódjamm á föstudag, próf í MOSinu fimmtudaginn eftir viku og svo utanlandsferð til DK daginn eftir það.
Tuesday, September 20, 2005, 21:47 - nörd
Home Improvement. Það eru alveg ótrúlega fáir skemmtilegir karakterar í þessum þætti. Tim og Al eru fínir en síðan eru held ég allir hinir frekar eða mjög leiðinlegir. Samt einhvern veginn þegar ég horfi á þetta núna á Disney Channel þá er ég alveg að hafa lúmskt gaman að þessu... demit... þangað til að boðskapurinn byrjaði að kicka inn... Fuck!Annars er ég að hugsa um að horfa Fólk með Sirrý á morgun. Gamla góða Tantrakrewið er að koma í heimsókn. Hlakkar ekki lítið að heyra hvað gamli snillingurinn, tantraþursinn hefur að segja. Átti ófáa gullmolana í gömlu þáttunum. Það verður (hugsanlega) awesome!
Monday, September 19, 2005, 18:29 - asparagus
Þar sem ég horfi alveg töluvert á MTV, eða er með það a.m.k. í gangi oft, þá nauðgast lög algjörlega í mann. Núna er einn gaur alveg að fara með mig, hann er svo æsings leiðinlegur. Það er r&b söngvarinn Akon, en hann er bara fáránlega leiðinlegur söngvari. Ég man fyrst eftir honum með skítalagið 'Lonely' og er núna aukagaur í einhverju öðru lagi. Ég bara veit ekki hvort hann er að syngja eða að freta, ógeðslega pirrandi rödd...Back Next


Categories



