Hundamatur og helgin 
Friday, November 11, 2005, 12:38 - bíó og tv
Ég fór að skoða hundamatinn sem ég fékk gefins á afmælinu mínu áðan. Var svona að velta fyrir mér hvort menn gætu ekki alveg eins borðað þetta eins og hundar. Ákvað að skoða ingredients. Finnst þau frekar dubious. Þetta er sem sagt Chappi with Chicken and Rice.

Ingredients:
Meat and animal derivatives (min. 4% chicken)
Cereals (min. 4% cooked rice)
Minerals

Mér fannst samt næringarupplýsingar (eða hvað sem þetta er...) jafnvel meira dubious.

Analysis(%)
Protein: 5
Oil: 4
Ash: 2,5
Fibre: 0,3
Moisture: 81

Ég veit ekki einu sinni hvað er í gangi þarna! Ég held að það sé bara best að Danni borði þetta.

Annars er planið fyrir helgina eftirfarandi:
föstudagur: Chill
laugardagur: halda fyrirlestur í skólanum, karfa, fyllerí.
sunnudagur: þynnka og guided göngutúr um 101.

Veit annars ekkert hvers konar fyllerí verður á laugardaginn. Eina sem er planað þar er að fá sér bjór og verða fullur. Ef eitthvað stuð er í gangi, endilega látið mig vita. Annars mega áhugasamir hafa samband og kíkja til mín eða eitthvað þá.
6 comments ( 40 views )   |  permalink   |   ( 3.2 / 82 )

Múzík - spes og silly #2 
Friday, November 11, 2005, 12:37 - tónlist
Ætla að bomba tveimur flipplögum inn fyrir helgina. Allir hafa nú svo gaman að William Tell, ekki satt?

Fyrra lagið er hressileg útgáfa þar sem lagið er flautað:
fred lowrey - william tell overture

Seinna lagið er ekki verri þar sem nokkrar sprellikellingar syngja lagið á sérstaklegan hátt (minnir mann stundum á hænur!):
Viennese Seven Singing Sisters - William Tell Overature



4 comments ( 24 views )   |  permalink   |   ( 3 / 71 )

In her shoes 
Tuesday, November 8, 2005, 22:20 - bíó og tv
Ég vinn eiginlega aldrei neitt í svona happdrættum og leikjum... þangað til núna. Haldiði ekki að ég hafi bara unnið bíómiða í einhverjum leik hjá SPRON. Ég var svo rosalega heppinn að vinna miða á stórmyndina In Her Shoes með Cameron Diaz í aðalhlutverki. Alveg svona ekta mynd fyrir mig... Ég er einmitt týpan sem neitaði að leigja kellingamyndir á videoleigunni með kærustunni. Mér leist ekkert sérstaklega vel á þessa mynd miðað við trailerinn sem ég sá einhvern tíma í bíói en við nánari athugun gæti þetta bara verið áhorfanleg mynd. Hún er að fá alveg fína einkunn á imdb og frekar jákvæð komment. Ég gef henni a.m.k. séns...
4 comments ( 36 views )   |  permalink   |   ( 2.9 / 80 )

Tölvuuppfærsla? 
Monday, November 7, 2005, 01:16 - nörd
Mig langar til að uppfæra borðtölvuna mína heima. Er farinn að vera hræddur um öll gögnin á henni því ég er kominn með svo ógeðslega mikið af alls kyns gögnum (aðallega media) sem mig langar ekki til að glata, svo...

Staðan núna

Borðtölva:
Eitthvað móðurborð
AMD XP 1700+
512MB minni
þrír WD ide harðir diskar (160GB, 160GB og 200GB)
utanáliggjandi 250GB IDE harður diskur

Var að skoða Toms Hardware og sá að WinXP höndlað að vera með software RAID-5 og stóð sig bara nokkuð vel í því. Mér finnst það töff og langar til að vera með þannig. Það höndlaði bara vel ef drif bilaði og gat rebuild-að allt eins og vindurinn.

Langar til að búa mér til RAID-5 röð með fjórum diskum.
Til þess þarf ég helst nýjan og betri kassa með góðri viftu.
Þá er spurning hvort maður ætti ekki bara að uppfæra almennilega.
Er með pælingar eins og að fá sér massastóran kassa með góðu power supply og góðri viftu. Skella sér svo á tvo 160GB diska og búa til röðina með fjórum 160GB diskum og hafa kannski 200GB diskinn sem system disk. Síðan gæti maður selt einn 160GB og haft annan þeirra sem system disk og keypt þrjá 200GB (eða 250GB). Hljómar töff að vera með með fjóra 250GB í RAID röð... Langar dáldið til að taka eitthvert þessara uppfærslutilboða eins og hjá att.is. Any thoughts?
7 comments ( 47 views )   |  permalink   |   ( 2.9 / 83 )

Múzík - spes og silly 
Wednesday, November 2, 2005, 12:03 - tónlist
Ætla að gamni að byrja að deila með ykkur silly tónlist sem mér hefur áskotnast um tíðina. Taka bara svona eitt og eitt lag, svona meðan ég hef ekkert skemmtilegt að blogga um.
Fyrsta lagið ættu flestir að þekkja, enda er búið að nota það í stef fyrir ákveðinn sjónvarpsþátt. Þetta lag er bráðskemmtilegt, byrjar hratt og fer svo út í grúví lag. Það er með gítarleikaranum Buddy Merrill sem virðist vera helvíti smooth á gítarinn. Jæja, hérna er lagið

buddy merrill - busy bee

annars er bara próf hjá mér á morgun og helgin óráðin. Kannski maður kíki bara upp í bús-stað.
5 comments ( 41 views )   |  permalink   |   ( 3 / 84 )


Back Next