BS-tján? 
Tuesday, January 10, 2006, 10:30 - nörd
Jæja, ég náði skítaMOSinu. Þetta próf var greinilega algjört rugl því að mér fannst mér ekki ná að klára tvö dæmi en samt fékk ég 6. Oh well, I dont care, ég náði! Ætli maður verði þá ekki að kalla sig BS-tján í stíl við BA-ldur. Doesn't quite have the same ring to it... Á samt ennþá eftir að fá út úr prófinu sem ég lærði í hálftíma fyrir. Það verður gaman.
16 comments ( 82 views )   |  permalink   |   ( 3 / 78 )

Helgin hin töffaðasta 
Tuesday, January 10, 2006, 10:27 - bugl
seinasta helgi var í einu orði sagt awesome. Hún hafði allt það sem góð helgi þarfnast: Bjór, hvítvín, frítt bús, tónleika, póker, snóker, Haarde, Mario, Mamas Tacos, ostafylltar brauðstangir, pizzur, kynþáttafordóma, snakk, hvítlauksbrauðshring, nammi, Star Trek og Kaaaahn!

Tökum eldsnöggt recap: föstudaginn kíktum við Helga á Tomma ásamt Boga, Óðni og fjallamönnunum Degi, Ragga og Benný. Þar spiluðum við Party og co., Texas Hold-em póker, snóker og trivial ásamt því að drekka. Skutum flugeld í hús og kíktum í bæinn. Vorum á Ara og fengum okkur grjónagraut (classic) og svo meira fyllerí. Hitti svo Baldur og við fórum þrjú á Mamas Tacos. Þar lenti ég í dálitlu sem ég hef aldrei lent í áður, nokkurs konar kynþáttafordómum. Þar voru einhverjir gaurar sem sögðu sífellt hluti eins og "Ætlar Mario ekki að fá sér pizzu?", "Mario finnst pizzur svo góðar, ekki satt?" og "Sjáið Mario bíða eftir pizzunni sinni.". Þetta var eitt af því steiktara sem ég hef lent í, held ég bara. Mér var samt nokkuð sama og borðaði minn mat bara í rólegheitunum með Baldri og Helgu.
Á laugardaginn var svo þynnka og svo körfubolti. Þetta var frekar skrítinn bolti hjá mér þar sem ég hitti best úr skotum 2-3 metrum fyrir utan þriggjastigalínuna, var með 3-3 nýtingu þar. Ég og Helga kíktum svo í móttöku uppi í Orkuveitu og djúsuðum okkur upp fyrir tónleikana í höllinni. Þar komu fram í u.þ.b. töffleikaröð:
Mugison, Björk, Hjálmar, Múm, Damon Albarn, Dr. Spock, Rass, KK, Sigurrós, Ham, Damien Rice, Egó, Magga Stína, Ghostigital og svo var víst Nick Cave þarna líka. Þetta eru a.m.k. þeir sem ég man eftir.
Sunnudagurinn fór í Star Trek maraþon með tilheyrandi munchi. Það var awesome. Fengum að heyra klassískar línur eins og "Kaaaaahn!" og fleiri töff references.
3 comments ( 23 views )   |  permalink   |   ( 3 / 112 )

Gaman að þessu 
Thursday, January 5, 2006, 16:28 - bíó og tv
Mér finnst alltaf gaman af því að heyra alvöru nöfn rappara, leikara og tónlistarmanna. Var að skoða frétt um Ingu Marchand (aka Foxy Brown) þar sem hún var sett í járn fyrir að reka út úr sér tunguna. Silly. Um daginn var ég svo að pæla í hvað maður er orðinn vanur sumum nöfnum, en samt þegar maður skoðar t.d. bara fyrra nafnið er það asnalegt. Til dæmis Sylvester Stallone sem er mjög macho er maðu ógeðslega kellingarlegt fyrra nafn, Sylvester, sem hentar einhverjum lúða frekar. Samt eru fullt af gaurum með mjög macho nöfn eins og Vin Diesel, Kristjan Leifsson, Bruce Willis, Clint Eastwood, Anton Victoryson og fleiri.... já já og jamm jamm...
5 comments ( 43 views )   |  permalink   |   ( 3.1 / 109 )

Áramótin 2005/2006 
Monday, January 2, 2006, 09:31 - bugl
Gleðilegt nýtt ár, hommarnir ykkar!

Áramótin voru bara fín. Þau hefðu getað heppnast miklu betur en voru engu síður ein bestu áramót í langan tíma. Seinustu áramót hef ég stundum farið í einhver partý þar sem ég þekkti engan og svo kúkast bara heim eða beðið í röð í marga klukkutíma - það var ekki sérstaklega gaman. Svo hafa verið áramót þar sem ég keypti mér miða á eitthvað "megadjamm" en þau djömm hafa svo yfirleitt verið frekar lame og ekki töff. Þessi áramót ætlaði ég að hitta alla vini mína en aðeins einn stóð fyrir sínu og nennti að hitta mig, en það var Baldur og fær hann hetjuorðu fyrir gott djamm þetta kvöld. Tökum smá recap. Um kvöldið var maður bara hjá M&P í chilli og borðaði góðan mat og svona. Eftir lélagasta skaup seinustu ára kom Helga og fagnaði svo áramótunum sjálfum með okkur þar sem við skáluðum í Bollinger kampavíni. Eftir það kíkti ég heim og checkaði á fólkinu sem sagði daginn áður að það væri spennt fyrir að hittast. Í stuttu máli beiluðu allir eitthvað annað (eins og virðist alltaf gerast um áramótin) nema Baldur sem kíkti á mig ásamt Magga bróður sínum. Við tókum því bara rólega en peppuðum okkur smá upp með einvherjum skotum sem innihéldu Guarana og koffín og auðvitað Opal skotum. Monty Python bjór var opnaður og checkað á teitum. Maggi varð svo hálfslappur af Monty Python bjórnum og beilaði á meðan ég og Baldur kíktum til Svanhvítar í áramótateiti. Þar drukkum við og djömmuðum þar til leiðin lá niður í bæ. Við pissustopp vorum við stungnir af svo við kíktum bara eitthvað tveir. Eftir nokkra lokaða staði og of langar raðir enduðum við inni á Sólon, þar sem ég hafði ekki komið síðan að shelltoes þóttu vera töff. Baldur checkaði á DJinum og spurði hvort hann gæti ekki spilað Gasolina. Baldur sagði svo eitthvað eins og "Hann sagðist svo sem ætla að spila það... veit ekkert hvort hann ge..". Baldur náði varla að klára setninguna áður en Gasolina var byrjað að bombast út úr hátölurunum, í gegnum loftið, inn um eyrun á okkur og beint niður í besefana okkar. Þar með fékk kvöldið stimpilinn 'Awesome'. Heimkoma var eitthvað um 7:30 en ég lenti ekki í því eins og sumir að fólk á heimilinu var komið á fætur að borða morgunmat. Good times.
8 comments ( 47 views )   |  permalink   |   ( 3 / 96 )

Jólin 
Thursday, December 29, 2005, 14:40 - bíó og tv
Þessi jól eru bara búin að vera nokkuð sweet. Er að vísu ekkert búinn að slappa nógu mikið af vegna vinnu, fjölskylduboða og þvíumlíku. Fékk mikið af töff gjöfum og líka fáein jólakort. Það sem einkenndi gjafirnar þessi jólin er örugglega það að fólk var fáránlega gjafmilt og var að gefa manni allt of dýrar gjafir. Meðal töff dóts sem ég fékk var Ipod, Kjarval bókin, Jörðin bókin, bol, Peter Jackson dvd safn, 'Mexico Style' bók, Guðna Bergs bókina, 'Contrary to popular belief' bók, Darth Vader Mr. Potato Head, bleikar nærbuxur og eitthvað meira. Crazy! Svo tók maður smá pakka á annan í jólum og mætti svo þunnur í vinnuna daginn eftir. Það var ekki eins töff. En með fylleríinu annan í jólum kláraði ég bara missionið! Olé, olé olé olé! Ég sá svo Golíat litla hundinn hjá tha Thorlaciuses, hann var megakrúsíbolla.
Annars er spurning hvað maður gerir eftir miðnætti á gamlárskvöld. Er ekki málið annars að reyna að hittast eitthvað og vera hress?
2 comments ( 28 views )   |  permalink   |   ( 2.9 / 83 )


Back Next