ooga-chaka... 
Wednesday, February 1, 2006, 22:20 - tónlist
Ég rakst á link hjá Davíði í Bæjaraland sem ég hafði ekki séð lengi. Það hvorki meira né minna en Hasselhoff að syngja Hooked on a Feeling. Gaurinn er náttúrulega snillingur og kann svo sannarlega að nýta sér bluescreen tæknina. Mjög töff!

Hvað er svo framundan? Handboltagláp að sjálfsögðu og svo skráði ég mig í vísó á föstudaginn í Vífilfell. Langt síðan ég hef komið þangað. Man samt eftir því þegar við fórum í vísó þangað og fengum að smakka fanta wildberry áður en það kom á markað. Það var mjög kúl og við fengum að taka 2L flösku með okkur þar sem við sögðumst þurfa bland í bollu. Bollan var síðan bara friggin' awesome, að sjálfsögðu. Ef einhver hefur eitthvað skemmtilegt fyrir mig að gera eftir vísó þá er ég opinn fyrir öllum hugmyndum þar sem Helga er að fara í eitthvað vinnupartý út í old-skool-ghettoi Reykjavíkur.
2 comments ( 23 views )   |  permalink   |   ( 3.2 / 84 )

Holophonic sound 
Tuesday, January 31, 2006, 16:49 - nörd
Setjið á ykkur headphone og hlustið á þetta:
holophonic sound
Þetta er fáránlega töff. Maður þarf greinilega ekkert surround drasl...
3 comments ( 23 views )   |  permalink   |   ( 2.9 / 77 )

Skemmtilegt nafn 
Tuesday, January 31, 2006, 12:10 - bíó og tv
Ég er að horfa á Arrested Development, season 3. Það er nýr character í þáttunum sem heitir Bob Loblaw. Það er skemmtilegt nafn...
1 comment ( 10 views )   |  permalink   |   ( 3.1 / 75 )

Kúk 
Tuesday, January 31, 2006, 00:23 - nörd
Ég er veikur. Það er leiðinlegt. Ég tengi það engan veginn hamborgaraátinu mínu á föstudaginn. Fékk samt skot á mig frá Arnlaugi yfirmanni mínum að ég ætti ekki að borða 6 hamborgara eftir að ég tilkynnti mig veikan. Ég held samt að það sé bara vegna þess að ég fékk helmingi hærra skor en hann í keilunni á föstudaginn. Djöfull er samt gaman í keilu. Mér gengur eitthvað alltaf svo ágætlega í því. Held að það sé bara ágætissport, er a.m.k. á einhverri sigurgöngu, er ekki búinn að tapa (á minni braut a.m.k.) síðan fyrir nokkrum árum...

Frétti svo í dag að stelpan fyrir neðan er að fara flytja ásamt kærasta og barni. Í staðinn fáum við einhvern gaur sem er víst með hund. Hún sagði að það væri nú ekki gelti hundur, heldur einhver krumpuandlitaður hundur af kínverskum ættum. Jájá... er það ekki bara fínt? Hún hefur kannski fengið nóg af djamminu á mér og Davíði nágranna mínum (þó svo að ég hef nú haldið mig frekar á mottunni seinasta árið, tel ég...).

Framundan næstu daga er í raun ekkert merkilegt. Ekkert planað so far um helgina, kíki kannski í vísó ef eitthvað er. Annars er það bara lærdómur, vinna og horfa á Ísland í handboltanum. Svo þarf maður að fara að mixast eitthvað fyrir þessa brautskráningu og fara að sækja um skóla úti... Ætli ég haldi ekki einhverja útskriftarveislu í byrjun mars (og þá verð ég að hafa þemað Veronica Mars)...
2 comments ( 20 views )   |  permalink   |   ( 2.8 / 69 )

Ég er kóngur. 
Friday, January 27, 2006, 13:13 - nörd
Ég ætla að krýna sjálfan mig ógeðskónginn! Ég var að bæta hamborgarametið í vinnunni (sem ég átti sjálfur áður). Ég skrifaði um það á seinasta ári þegar ég setti hamborgaramet með því að borða fjóra stóra (a.m.k. 200gr) borgara í vinnunni. Í dag var svo mótsdagur og fékk ég verðuga keppni frá Danna. Hann borðaði fjóran og hálfan borgara og á hann heiður skilinn og titilinn hamborgaraprinsinn. Ég bætti þó um betur og borðaði kippu af borgurum, eða sex. Þar með held ég titlinum sem hamborgarakóngurinn (a.k.a. borgarastjórinn a.k.a. bürgermeister). Þar að auki ætla ég að taka mér titilinn ógeðiskóngurinn enda finnst flestum þetta vera ógeðslegt. Mér finnst þetta hins vegar töff.

Í öðrum matarfréttum er það helsta að frétta að nýtt poppmet var sett. Það felst í því sem flæstar ópoppaðar baunir séu eftir í pokanum. Tommi átti metið fyrst með 12 baunir ópoppaðar. Ég jafnaði það rétt fyrir jól, en í gær þegar Ísland vann Serbíu-Svartfjallaland þá voru aðeins 6 baunir eftir hjá mér. Það er því nýja metið. Metið var framkvæmt í örbylgjuofninum hjá M&P með Orville poppi. Úje!
11 comments ( 50 views )   |  permalink   |   ( 3 / 67 )


Back Next