Farinn til Skotlands 
Wednesday, July 19, 2006, 23:35 - tilkynningar
Jæja, ég er farinn til Skotlands, kem aftur á miðvikudaginn. Vá, hvað það er örugglega fyndið að sjá hvað bærinn verður aaaalveg tómur þessa helgina þar sem allir eru að framfylgja djammbanninu stóra. Good times.
16 comments ( 100 views )   |  permalink   |   ( 3.1 / 83 )

Örfáar myndir 
Monday, July 17, 2006, 01:30 - djamm
Jæja, ákvað að henda örfáum myndum inn frá seinustu vikum: Read More...
8 comments ( 93 views )   |  permalink   |   ( 2.8 / 89 )

Federline... Federline! He's the reason for the word bitch! (syngist við Outkas - Roses) 
Sunday, July 16, 2006, 16:35 - bugl
Good times þessa helgi. Federline-klúbburinn K-FAG var awesome með tilheyrandi Britneyjum (hmmm.. mér finnst að einhver eyjaklasi ætti að heyta Britn-eyjar - góð pæling). Ég er annars að fikta aðeins með nýrra vefkerfi hérna á hughgr.ant.is svo ég er að fikta smá. Það væri svo mest fyndið í heimi ef
Read More...
2 comments ( 33 views )   |  permalink   |   ( 3 / 79 )

K-FAG 
Tuesday, July 11, 2006, 11:28 - bíó og tv
Jæja, góð helgi búin. Fín og hress djömm tekin. Fyrra var auðvitað heimkomupartý Palla og Baldurs sem var með movie-character þema. Mjög skemmtilegt og ágætlega heppnað. Þeir sem mættu í búningum voru bara mjög vel heppnaðir og fattaðist yfirleitt hver aðilinn átti að vera. Baldur lenti að vísu dáldið í því að fólk hélt að hann væri einhver Jón Væni (John Wayne) týpa þegar hann leit nákvæmnlega út eins og Hans Óli (Han Solo). Ég sjálfur var Indiana Jones og var þetta mjög fyndið móment þegar ég og Baldur mættumst þegar við vorum báðir Harrison Ford í byrjun kvöldsins. Fínt djamm í bænum þar sem ég og Baldur keyptum m.a. bjór handa hvor öðrum á sama tíma og litum út eins og bjánar með tvo bjóra hvor og eins og að kærusturnar hefðu stungið okkur af eða eitthvað.

Seinna kvöldinu var svo startað með HM og bjór með Hez og Jóa. Kíkti svo til Benna og Mörtu í meiri bjór. Smakkaði þar nýtt skot sem ég hafði ekki smakkað áður og var alveg að fíla. Opal hálsbrjóstsykurs skot. Hjá Benna virtust bara ég og Benni kunna að taka skot og því endaði það með því að bara ég og Benni tókum skot. Bara hörkugaman. Við kíktum svo á Hressó þar sem sumardjamm PartyZone fór fram. Þar 'fékk' Benni loksins að redda Óla reddara inn og það var bara mjög gaman þar. Fékk mjög spes hrós þar, en að ég væri með fáránlega mjúkar hendur. Athyglisvert en útskýrir af hverju ég er alltaf að rúnka mér.

Hvað er framundan?

Tommi kemur auðvitað á fimmtudaginn sem verður nice. Svo verður loksins stofnfundur K-FAG (Kevin Federline Appreciation Group). Staðsetning er ekki ráðin en grunar einhvern veginn að það verði hjá mér. Öllum er boðið en verða helst að mæta klæddir í anda K-Fed og stelpurnar sem Britney enda verður þemað að sjálfsögðu Britney loves Kevin (eða var það Jenna loves Rocco?). Hugmyndin er að einkennisbúningur K-fed er wifebeater, víðar gallabuxur og jafnvel hattur og manbag. Svo er tha Fed yfirleitt frekar illa rakaður og jafnvel frekar sjúskaður. K-fed-inn hatar ekki að fá sér bandarískan bjór og jack í kók. Okkur Baldri fannst að það ætti að vera skylda að mæta með a.m.k. einn bandarískan bjór. Held að það sé sniðugt. Þetta verður a.m.k. bókað awesome, hlustað á Popozao og Americas Most Hated ásamt auðvitað bunch Britney-lögum -> Mega!
Veit ekki hvað á að gera á laugardeginum, en mig grunar að það verði eitthvað geðveikt.

Svo ætla ég að skreppa aðeins til Edinborgar þar næstu helgi að skoða aðstæður fyrir K-Fed aðdáendur þar svo þá helgi eru allir í djammbanni. Reikna með því að allir virði það.

3 comments ( 39 views )   |  permalink   |   ( 3 / 86 )

Helgi... Jei! 
Thursday, July 6, 2006, 17:20 - bugl
Jei, það er að koma helgi! Hvað þýðir það? Auðvitað party and bullshit! Palli og Balli komnir til landsins og það er baaara awesome. Tomminn verður kominn svo eftir viku tilbúinn í K-FAG pakkann. Á föstudaginn er planað að halda smá teiti hjá mér af því tilefni að Palli og Balli eru komnir. Það verður smá þema, en það er 'persóna úr kvikmynd'. Mæli með því að allir reyni að mixa eitthvað smávegis í því, þó svo að það sé ekki inntökuskilyrði. Svo á laugardaginn er vonandi planið að kíkja á pz kvöldið sem ég talaði um í seinustu færslu með Benna og vonandi einhverjum fleirum. Þeim sem langar að kíkja á mig á föstudagskvöld hafið endilega samband. Ég spái temmilega góðu veðri og góðu stuði þessa helgina með tilheyrandi gæjadansi.
2 comments ( 25 views )   |  permalink   |   ( 3 / 90 )


Back Next