Tuesday, September 19, 2006, 09:28 - djamm
K-I-S-S-I-N-GS-E-X-I-N-G
C-A-S-I-O
P-O-K-E
Y-O-U
M-E
I
Jamms, þetta er úr Over and Over með Hot Chip. Good times. En nú er komið að því, seinasta partý áður en ég fer út. Ykkur til hagræðingar hef ég bold-að það sem skiptir máli.
Á föstudaginn ætla ég að halda smá KveðjuAfmælisGaborParty hjá mér í elsta fjölbýlishúsi Reykjavíkur að Mímisvegi 2a. Öllu töff fólki er boðið og ef þú ert ekki töff þá á ég Star Wars hjálma og Batman grímu sem geta gert þig töff. Ég var jafnvel að hugsa um að kaupa einhvern bjór og jafnvel gera einhverja smá bollu úr einhverju afgangsbúsi sem ég á hérna svo það verður örugglega gaman! Ástæðan fyrir því að ég ákvað að mixa afmælinu inn í þetta er að ég á afmæli viku eftir partýið og verð einn úti í Edinborg á afmælinu mínu sem er ömurlegt. Þess vegna vil ég halda upp á það viku fyrr með góðum vinum.
Spurning hvort Tommi og Palli taki þátt í hátíðarhöldunum via webcam. Það væri geðveikt töff. Sérstaklega þar sem það er planið að halda einhver international partý þar sem ég verð í E-borg, Tommi og Palli í DK og aðrir lúðar á Íslandi og allir í webcam sambandi. Taka drykkjuleiki og svona þannig. Bara fyndið, töff og spes!
Mæting er bara einhvern tíma eftir klukkan 19 og það verður bara geðveikt gaman! Er það ekki?




( 3.4 / 133 )
Tuesday, September 12, 2006, 09:33 - bugl
Manni dreymir einhvern veginn skemmtilegustu og súrustu draumana á morgnana ef maður leggur sig eftir að hafa vaknað eitthvað snemma um morguninn. Mig dreymdi fullt af athyglisverðu dóti í morgun. Það var fengið nálgunarbann á mig í einum draumi, í öðrum var Predator staddur og var geðveikt fyndinn. Hann var alltaf að segja brandara á kostnað kvenna og var ógeðslega fyndinn og stelpurnar sem voru með mér í grunnskóla voru sko ekki að fíla það. Þetta allt saman gerðist uppi í Orkuveitu þar sem ég og annar gamall félagi minn vorum leigumorðingjar og vorum búnir að myrða fullt af fólki þar og áttum bara eftir lokagaurinn, Guðmund forstjóra, þegar ég vaknaði. Það var svo bókað fullt af meira skemmtilegu sem ég man ekki eftir.Ég ætla annars upp í sumarbústað þessa helgi. Var að hugsa um að veiða aðeins í Lambavatni sem rétt hjá. Þegar maður fer að veiða í vatni er langbest að veiða á spoon (ekki skeið) eða á maðk og því fylgir að veiða maðka. Það er alveg furðulega gaman. Í garðinum hjá mömmu og pabba eru alveg nokkuð stórir maðkar og eins og flestir vita þá koma þeir ekki upp úr jörðinni fyrr en það er orðið vel dimmt og þar að auki þarf að hafa rignt svo moldin sé lausari í sér. Þegar maður svo 'veiðir' ánamaðkana þarf maður að læðast alveg upp að þeim og grípa svo snöggt í þá því yfirleitt eru þeir ekki allir upp úr jörðinni heldur hálfir ofan í holunum sínum. Anyways, veiddi nokkra fyrir morgundaginn, good times.
Svo er stefnan að hafa eitthvað afmæliskveðjuteiti næstu helgi þar sem ég fer út á þriðjudaginn eftir viku. Afmælið mitt er svo 3. okt sem er annar skóladagurinn minn svo ég verð einn og í ógeði á afmælinu mínu. Ógó ekki töff! Þess vegna vil ég halda eitthvað upp á það og þess vegna verður afmælispartýið mitt viku fyrr en venjulega. Allir sem vilja kveðja mig eru að sjálfsögðu velkomnir og mun ég pósta einhverjum details um þetta eftir helgi.
Tuesday, September 12, 2006, 09:28 - bíó og tv
Einhverjir sem ég þekki ættu að vera ánægðir með að sjá að það á að gera Little Britain bíómynd!Monday, September 11, 2006, 11:00 - bíó og tv
Sá frönsku myndina Renaissance í gær. Helvíti flott. Þetta er sem sagt teiknimynd sem er í svipuðu look-i og Sin City. Mjög flott og bara skemmtileg í þokkabót. Er annars bara veikur heima að horfa á sjónvarpið. Var duglegur og vaknaði í nótt, loggaði mig inn á cyberspace-ið og kaus Magna skvilljón sinnum.
ADSLið er annars eitthvað í óstuði hjá mér þessa dagana og sambandið við cyberspace-ið frekar óstöðugt. Það er svo sérstaklega pirrandi þar sem ég er með cyberspace-sjónvarp og þá koma truflanir og þess háttar. Heimasíminn minn er þá kominn líka í eitthvað rugl. Pirrandi shit!
Sunday, September 10, 2006, 15:19 - nörd
Lyf við matarofnæmi! Þá get ég loksins byrjað að kíkja með Tomma og co. í mission á KFC...Back Next


Categories



