Heitt árið 2007 
Sunday, February 4, 2007, 15:18 - bugl
Hvað verður heitt árið 2007...

allir eru að pæla í því hvað verður heitt 2007. Ég hef heyrt nokkrar uppástungur, t.d. með orð og þannig sem verður heitt árið 2007. Við eigum eftir að sjá betur hvernig það þróast. Sumt var náttla bubblin' in 2006 og heldur áfram að hitna árið 2007. Hérna eru nokkur dæmi um orð og orðatiltæki sem fólk hefur sagt að verði heitt árið 2007:

- Vintage

- Gemmér five!

-setningar eins og "2006 hringdi og bað um að fá hárgreiðsluna sína til baka"

- Truflað!

- Dí! (með eins mörgum 'í'-um og maður þarfnast.. as in "dííííí!"

- Landkrabbi

- Reðurfés (heppilegt í formlegri níðum)

- svo verður heitt að blanda saman stigum af bölvi eins og "gosh fucking darnit" og "gvöð, djöfulsins tussa!"

man ekki fleiri eins og er.. endilega bætið við...
7 comments ( 105 views )   |  permalink   |   ( 3.1 / 64 )

Icelandair geta gert góðar auglýsingar 
Thursday, February 1, 2007, 23:37 - bíó og tv
Var að sjá þessa auglýsingu. Já, maður er ekki nógu mikið inni í þessu hérna í E-burgh! Mér fannst hún mjög fyndin. Eitthvað svo skemmtilegt við að heyra útlendinga tala svona um Ísland og Íslendinga. Bara fyndið.


7 comments ( 32 views )   |  permalink   |   ( 2.9 / 61 )

Pirrandi 
Thursday, February 1, 2007, 12:08 - asparagus
Er ekki hress núna.
Er með hausverk, er slappur og er búinn að vera þannig alla vikuna.
Ætlaði einmitt að vera geðveikt duglegur að læra geðveikt mikið seinustu daga og er ekkert búinn að meika það. Ekki töff. Stefnir því í lærdómshelgi. Það verður anti-stuð.

Lítið annars að frétta. Pantelis nágranni minn var að flytja út úr 'the Halls' í dag því hann og félagi okkar ákváðu að leigja sér íbúð niðri í bæ. Kíkti þangað í gær og hún leit bara nokkuð vel út.
Anyways, meika ekki að hanga of mikið fyrir framan tölvuna... Peace!

add comment   |  permalink   |   ( 3 / 53 )

Nöfn 
Wednesday, January 31, 2007, 15:18 - asparagus
Ég var eitthvað að pæla í því áðan hvort ég myndi finna mynd af mér á google images ef ég myndi leita að "kriz". Ég fann ekkert í fljótu bragði. Endaði á því að finna bara endalausa krossa, vegamót og þannig lagað. Fór að hugsa að ég hefði átt að kalla mig frekar bara kridsjz eða eitthvað sem enginn er með. Skoðaði m.a. heimasíðu DJ Kriz og eitthvað þannig. Svo ég gæti ekki notað það basically ef ég ætla að verða heimsfrægur plötusnúður (hmmm..). Svo fór ég að hugsa um hvað aðrir kalla sig, hugsaði m.a. að Tommi White hlýtur aldrei að lenda í einhverju svona. Prófaði þá að googla Tommi White og viti menn, það er til önnur manneskja sem heitir Tommi White. Tommi White er sko lífefnafræðinemi í Missouri í Bandaríkjunum. Kíkið á heimasíðuna hennar hérna. Jei, mega töff.

Ekkert mikið af frétta af mér hérna svo sem. Skólinn gengur sinn gang. Er að vísu að byrja að gera ágætlega skemmtilegt verkefni í kúrsinum Multimedia Design. Lokaverkefnið þar er að gera 3 mín trailer fyrir bíómynd eða gera demolevel fyrir tölvuleik. Virkar stuð, en engu að síður krefjandi..
1 comment ( 16 views )   |  permalink   |   ( 3.1 / 50 )

Fyrsti dagurinn minn hérna í Heriot Watt 
Thursday, January 25, 2007, 22:57 - asparagus
Ég ætlaði alltaf að segja frá fyrsta deginum mínum þegar ég kom hingað til Edinborgar aftur eftir jólafríið. Well, it sucked. Gekk svo sem alveg vel að komast uppí skóla en þegar ég kem inn í herbergið mitt sá ég að það leit út eins og einhver hefði gist í herberginu mínu. Það var búið að taka góðu sængina mína, koddann minn og rúmfötin mín öll. Í staðinn var kominn university standard crappy ass sæng, koddi og rúmföt pökkuð inn í plast. Ég skoðaði þetta nánar hérna og fann ekki sængina mína. Ég talaði svo við Pantelis og komst að hvað hafði gerst. Það hafði verið spreyjað herbergið vegna bed bugs og þar af leiðandi hent öllum rúmfötum og þannig, meira að segja dýnunni. Djöfull varð ég pirraður. Ég hafði keypt frekar nice sæng og góðan kodda svo ég var eðlilega frekar pissed. Eftir að ég róaði mig svo niður sendi ég email á þessi illmenni og spurði hvort ég fengi ekki einhverjar bætur fyrir þetta. Svarið sem ég fékk hljómaði einhvern veginn þannig að ég fengi ekki bætur en ég gæti sótt um styrk hjá "student hardship fund". Hmmm... fannst ég ekki alveg vera kandídat í það svo ég bölva bara þessum vitleysingum í hljóði núna. Alveg fokking silly, spreyja vegna bed bugs vegna hættu á infection. Það voru sem sagt tæplega 30 herbergi spreyjuð vegna þess að örugglega einhver skítugur arabi (jamms, heavy fordómar) þvoði ekki rúmfötin sín. Well, búið og gert... fokkit!

Annars hef ég verið að pæla. Ég veit ekki hvort það muna allir eftir því en ég var að nöldra eitthvað yfir því hvað sturtan mín væri asnaleg. Það er sem sagt bara einn knob á henni og mér fannst það frekar furðulegt þar sem ef ég kveikti á henni kom alltaf bara kalt vatn. Það sem ég komst að seinna var að ef maður fór nógu langt þá breyttist kalda vatnið í heitt. Þetta fannst mér asnalegt því ég er vanur að hafa tvo knobs, einn fyrir heitt og annan fyrir kalt vatn. Núna hins vegar hef ég tekið þetta system í sátt. Er bara helvíti þægilegt. Það góða við það er að ég er ekki lengi að stilla sturtuna mína, ég veit bara að ég sný uppað tæplega 7 og þá er ég með passlega sturtu. Helvíti sniðugt. Ég er hins vegar smá tíma alltaf að stilla sturtuna mína heima, sem mér þykir einstaklega leiðinlegt. Kannski er bara aðalkosturinn við þetta system að vera með tölur á þessu og að maður fer ekki heila hringi. Væri gott ef maður vissi bara heima að kalt ætti að vera í 3 og heitt í 6 til dæmis. Góð pæling...

Meira um current events seinna ^_^


1 comment ( 16 views )   |  permalink   |   ( 3.2 / 62 )


Back Next