Monday, April 30, 2007, 22:44 - nörd
Ætlaði að vera ógeðslega hress og breyta smá um look á síðunni. Gera svona hresst sumarlook á hana. Setti einn lit og svo nennti ég ekki að gera meira.
Kemur svona fáránlega asnalegt look út. Sumarleg að utan og svo svart/hvít að innan... jei




( 3.3 / 62 )
Sunday, April 29, 2007, 23:47 - asparagus
Jei, ég er loksins búinn í prófum. Þetta var vibbaleiðinlegur pakki 8 próf á 11 dögum. Held að þetta hafi bara gengið nógu vel. Vona bara það besta. Auðvitað fagnaði maður þessu með smá bjór og stuði. Valtýr bauð mér og Andra til sín á föstudaginn þar sem við sötruðum og spjölluðum í góðum gír. Í gær(laugardag) fór ég svo aðeins í bæinn. Hitti þar Þóru og frítt föruneyti hennar sem voru í stuði að fagna afmæli hennar. Fínt stuð. Tók nokkrar tilraunir áður en mér tókst að hitta fólkið. Var nefnilega neitað inngöngu á stað þarna vegna þess að ég var "wearing trainers and a track jacket" sem þótti ekki nógu posh. Ógeðslega pirrandi shit. Þoli ekki svona pakka. Svo sá maður einhverja gaura í þriggja punda ljótri skyrtu frá H&M og einhverjum ógeðslegum svörtum lakkskóm koma út þaðan. Vibbi. No taste. Anyways, kíkti þá bara á meðan á ágætis pöbb og fékk mér athyglisverðan drykk sem virðist vera frekar vinsæll þarna. Stronbow cider með blackcurrant safa út í. Frekar sætt en bara nokkuð nice samt.
Er svo búinn að vera að horfa mikið á How I Met Your Mother í prófunum. Góðir þættir, sem minna mann á friends. Svo er ég búinn að vera að horfa á Fresh Prince of Bel-Air líka mikið núna. Claaaaaaasic stöff! Mæli annars með því að leita að "carlton dance" á youtube. Nokkur góð video þar á ferð.
Lenti svo í því stuði að itunes henti öllum lögunum mínum út af ipodnum mínum nema old skool hardcore lögunum mínum. Spes stemning því á mér þegar ég er með ipodinn minn...
Wednesday, April 25, 2007, 18:05 - bíó og tv

Var að leigja mér Running Man með Arnold á amazon og fékk þennan disk sendan. Einhverjar villur? JÁ! Það stendur Schwarznegger en ekki SchwarzEnegger. Algjörir aular. Svona lagað á ekki að klikka í vestrænu landi. Það er "eðlilegt" að svona fari í rugl í Taívan eða eitthvað þar sem verið er að framleiða bootleg diska og þannig, en þetta er bara bugl! Maður á sko að skrifa nafnið rétt, sérstaklega þegar um er að ræða framtíðarforseta Bandaríkjanna [1].
Simmsalabimm, gefðu mér fimm! (h5)
[1]: Heimild: Demolition Man (1993)
Tuesday, April 24, 2007, 23:17 - nörd
Það er alltaf verið að segja hvað retro sé töff. Þeir sem eru hins vegar töff vita að retro er svoooo 2006 og vintage er 2007. Það sem er hins vegar ekki töff er retro og vintage internettengingar. Hérna í skólanum virðast þeir vera að færa sig í átt vintage enn meira. Hraðinn hjá mér er kominn niður í max 7kB/sek sem er einmitt sá hraði sem maður gat náð með 56k módemi. Jei, ég er sem sagt í raun með dialup tengingu. Samt stendur ennþá einhvers staðar í upplýsingum um herbergin hérna að í hverju herbergi sé "high speed internet connection"... Þvílíkt bull (var að hugsa um að taka Video Game Nerd rant hérna en hætti við)!!! Hins vegar virðist þetta eins og takmörkun á port eða eitthvað því ég næ 7kB/sek í remote desktop tengingunni minni og í IE á sama tíma en þó ekki yfir þetta ef ég nota bara annað í einu. Hmmm... bara steikt.
Búinn með sex próf(tíhíhí... sexpróf) og á tvö eftir, þ.á.m. það erfiðasta. Það tek ég á fimmtudag. Á föstudag fyllist líf mitt gleði þegar prófunum verður lokið og ég get slakað örlítið á. Ekki skemmir fyrir að það er spáð um 17°C hita og sólskini um helgina. Vonandi rætist það. Stefni á að vera kominn með base-tan áður en ég kem heim til Íslands. Verð í harðri keppni við Baldur í því.
Monday, April 23, 2007, 18:38 - nörd
Af einhverri ástæðu þá er ekki búið að loka á HÍ póstinn minn og hef ég verið að fá póst þar ennþá. Aðallega er að fjölpóstur sendur á öll HÍ netföng. Ég fékk einhvern póst þar sem fulltrúar stjórnmálaflokkanna ætla að vera með ræður og eitthvað. Fannst enska útgáfan góð:The Icelandic movement, Jakob Frímann Magnússon.
Left Green, Kolbrún Halldórsdóttir.
The Independent party, Illugi Gunnarsson.
The Progressive party, Jónína Bjartmarz.
The Liberal party, Guðrún Þóra Hjaltadóttir.
The alignment, Björk Vilhjálmsdóttir.
Þegar þessi nöfn eru komin á ensku er þetta eitthvað svo spes. The alignment - rosalega töff.
Komnar fullt af góðum hugmyndum í worldscramble pælingunni. Þetta er greinilega catching on, sá að Guðný hét á MSN: Guðný Ella I touch Lars. Var fyrst bara "ok.. sure.." áður en ég fattaði að I touch Lars = Thorlacius. Good times.
Ein pæling. Fattar fólk ef maður skrifar t.d. í sms "Það er túrbó gott veður hérna (h)"?
(h) er sem sagt kallinn með sólgleraugun á MSN. Skilur fólk sem sagt MSN keyboard shortcuts?
Búinn með 5 próf núna - 3 próf eftir... go KRiZ go!
Back Next


Categories



