Thursday, June 7, 2007, 13:32 - bugl
Fannst vera kominn tími á að setja eitthvað nýtt hérna inn.Er byrjaður að vinna í verkefninu mínu núna. Keypti tölvu af OR til að setja upp server á. Hann er núna up and running í góðum gír. Aftur á móti ákvað fartölvan mín að deyja bara algjörlega á svipuðum tíma svo ég get kvatt góðu dagana þar sem ég multitaskaði sjónvarpsgláp og netvafr(ógó orð). Svo er ég að byrja að komast í arcade tölvuleikjastuð aftur. Spila gamla arcade leiki ásamt GameBoy, Nintendo og fleiru gömlu er frábært. Datt inn í að spila gamla Batman leikinn á GB, kláraði hann næstum því í fyrstu tilraun. Frábær leikur, mundi alveg eftir honum síðan ég spilaði hann á níunda áratuginum. Talandi um níunda áratuginn, þá er það alveg classic hjá þýðendum að þýða 'eighties' sem áttunda áratuginn. Fer alltaf smá í mig.
Annað sem ég hef tekið eftir er að í geeeðveikt mörgum tónlistarvideoum er verið að 'auglýsa' síma. Þetta er nú að vísu búið að vera í gangi í nokkur ár en þetta er bara að verða enn algengara núna og er eitthvað steikt. Stjarnan í videoinu kíkir á sjálfan sig í videoi á símanum eða eitthvað svipað... alveg leim.
Svo var ég að byrja í ræktinni í fyrradag og það er sko gott að vera byrjaður að hreyfa sig - maður verður ógeð á því að liggja bara heima og horfa á South Park með furðulegum texta.
Eitt sem ég hef tekið eftir hjá mér er að ég er að verða lélegri í íslensku. Alltaf að lenda í því að pæla hvort það er 'ý' eða 'í' eða eitthvað svipað. Dæmi: Skrítið/skrýtið. Finnst eiginlega bæði virka rétt (og fann einhvers staðar að hvort tveggja er rétt).
Annars stefni ég að kíkja upp í bústað þessa helgi í rólegheit.




( 1.3 / 310 )
Thursday, May 31, 2007, 11:55 - asparagus
Ég var að horfa á South Park áðan á einhverjum asískum DVD diskum sem ég pantaði fyrir löngu. Það kom svo einhver lína sem ég heyrði ekki nógu vel þannig ég setti enskan texta á í smá stund og tók þá eftir að þetta var engin venjuleg enska. Þetta er hin rómaða og bráðskemmtilega "enska þýdd yfir á kínversku og aftur yfir á ensku"-enska. Algjört rugl. Tökum dæmi:"Thanks for having us all over for dinner, Chris and Linda. Yes, It was fabulous"
er þýtt sem
"Dinner thanked, in the gram. The reach was really a delicacy too yes"
annað dæmi:
"friends by default... hahaha..."
er þýtt sem
"Friend recognice tacitly... hahaha"
shit, þetta er bara silly:
"he's such a douchebag" = "He is a sleeping bag simply"
meira:
"No Dude, you're supposed to put their hand in warm water that makes them pee"
=
"Wrong! You should chase a his hand Put to let him wet the bed into in Shui-li!"
Þetta er sem sagt allt úr Ass-pen þættinum. Aspen virðist vera þýtt hjá þeim sem "the originally", Butters er kallaður Ba og ég held að engin setning sé eins og þetta er bara silly.
Ein lokalauma:
"When you put you finger up your butt and wipe on their upper lip to give them a Hitler moustache"
=
"The handle knob puts to draw in his lips top into the fart eyes A Hitler's beard"
Shit þetta er frábært!
Thursday, May 31, 2007, 00:23 - nörd
Eru ekki langflestir bara orðnir að youtube bloggurum. Finnst eins og geeeðveikt margir nenna ekki að skrifa neitt og pósta bara youtube videoum. Stundum stuð en verður oft þreytt... jæja, gerum það samt: Checkið á þessu, þetta er nú samt stutt og hresst.Ein pæling að lokum. Ég hef verið að pæla í því að þegar maður deyr og fer til himnaríkis, er maður þá á þeim aldri í himnaríki sem maður er á þegar maður deyr? Getur maður kannski ráðið því og verið yngri? Hvað þá með börn sem deyja mjög ung, eru þau bara grátandi og pissandi á sig í himnaríki? Eða fá þau kannski að eldast í himnaríki? Any thoughts?
Tuesday, May 29, 2007, 12:12 - nörd
Eitt af því sem ég elska við að vera kominn til baka er að vera kominn með hraða internettengingu aftur. Það var ógeð úti. Var að downloada á max 15 kB/sek. Núna er ég í um 400 kB/sek og það er bara snilld. iTunes er að vísu oft í sérstaklega miklu stuði þegar það downloadar podcasts og nær miklum hraða eins og sjá má á myndinni hérna...
Ég er annars veikur núna. Er farinn að halda að ég sé að fara að breytast í stelpu. Pissa bara með rassinum...
Wednesday, May 23, 2007, 21:19 - asparagus
Jæja, þá er ég loksins kominn til landsins og nú stendur til að vera hérna allt sumarið. Reikna með því að þetta verði sumar sólarinnar og awesome-heita. Það verður bara töff.[nba viðvörun]
Horfði á lottery-ið í beinni í gær með Magnúsi. Mjög skemmtilegt verð ég að segja. Liðin sem þeir sem ég þekkja halda upp á fengu mun lélegri pick en þau áttu skilið á meðan mínir menn í Portland eru á leiðinni að verða nýtt dynasty! Awesome! Ég vona bara að þeir haldi í Oden og geri ekki einhverja trade-vitleysu. Þetta var bara þvílíkt spennandi þegar ég sá Boston, Memphis og Milwaukee öll fá pick 4-6.. þvílíkt spennandi.
Svo er bara að vona að Cleveland og Utah standi sig þó svo að ég eigi þannig séð von á semi-skemmtilegum finals. Það verður að minnsta kosti horft á.
[/nba]
[fótbolta viðvörun]
Meistaradeildin fór ekki eins og maður vonandi. Oh well, þetta var kannski sanngjarnt miðað við hvernig þetta fór seinast. Can't win 'em all. Þar að auki var ég svo heppinn með liðið mitt í NBA að maður gat ekki búist við því að fá allt.
Svo er bara spurning að kíkja á einhverja leiki með Val í sumar. Held að það gæti alveg verið málið! Valur - KR á morgun held ég.
[/fótbolta viðvörun]
[skó viðvörun]
Fékk Jordan skóna mína í gær, bæði gulu/svörtu og rauðu/svörtu/hvítu ásamt Adidas Hideout skónum (hannaðir af Jim Lambie) sem mig hafði dreymt um lengi..
[/skó viðvörun]
já og og... that's it I guess... Áfram Ísland!
Back Next


Categories



