Ný plata frá Mr. Scruff 
Tuesday, September 23, 2008, 11:55 - tónlist
Ég hef alltaf haldið upp á Mr. Scruff síðan að ég heyrði lagið Fish (ekki hans video) með honum um miðbik tíunda áratugarins. Hann er alltaf með góðan húmor, gerir góð og hress lög, skemmtilegar teikningar og fleira. Hann var að koma með nýja plötu út hjá Ninja Tune plötufyrirtækinu sem heitir Ninja Tuna. Hægt er að checka á nýjasta videoinu frá honum hérna fyrir neðan og svo er hægt að hlusta á hann mixa plötuna saman hér .



1 comment ( 5 views )   |  permalink   |   ( 3.3 / 21 )

Rafmagnsbílar 
Sunday, September 21, 2008, 15:44 - nörd
Rafmagnsbílar eru alltaf meira og meira í sviðsljósinu þessa dagana. Rosalega sniðugir og umhverfisvænir og svona. Talað um hvað þetta sé nú allt saman svo auðvelt. Maður bara stingur honum í samband og hleður hann yfir nóttina. Minnsta mál í heimi. Það er samt einn punktur fólk pælir kannski ekki mikið í. Hefur flest fólk greiðan aðgang að innstungu fyrir bílinn sinn? Held að það sé mjög lítið um að fólk sé með bílskúr sem það notar actually fyrir bílinn sinn. Svo eru það oft hverfandi líkur að maður fá stæði beint fyrir utan heima hjá sér. A.m.k. ekki hjá mér og mig grunar að þannig sé málið hjá langflestum. Ég er nú yfirleitt bara nokkuð sáttur ef ég fæ stæði í götunni mínu megin. Þessi rafmagnspæling er alveg ágæt en bara virkar ekki aaaalveg nógu vel in general, held ég.
2 comments ( 6 views )   |  permalink   |   ( 2.8 / 21 )

Kikkoman sojasósa 
Friday, September 19, 2008, 13:27 - asparagus
augljóst hvernig sojasósu maður á að fá sér! Þetta er alvöru sojasósa og greinilega kick-ass!



courtesy of Hez
1 comment ( 7 views )   |  permalink   |   ( 2.9 / 18 )

Rio Funk 
Thursday, September 18, 2008, 11:17
Ég var að hlusta á eina af mínum uppáhaldsplötum í bílnum. Sú plata heitir Classic Jazz-Funk Mastercuts 6 - Jap Jazz og inniheldur jazz-funk slagara eftir Japani eða lög með eitthvað japanskt connection. Anyways, þá er eitt uppáhaldslagið mitt þarna lagið Rio Funk með Lee Ritenour. Það sem er skemmtilegt við þetta lag er að þetta er eitt af þessum lögum sem allir þekkja, svipað og Heimcomputer með Kraftwerk (betur þekkt sem Nýjasta-tækni-og-vísindi-lagið). Þetta lag er nefnilega oft undir í lesnum auglýsingum á Rás 2 og líka undir skjáauglýsingum í Sjónvarpinu. Ég ákvað að gamni að checka á þessu lagi á youtube og fann það m.a. hérna. Ef þið nennið ekki að hlusta á allt lagið þá mæli ég með því að stökkva aðeins inn í lagið í kringum 4:50 og horfa á svona eina og hálfa mínútu þar. Bassaleikarinn fer hamförum. Magnað að það komi svona flott sound miðað við það sem hann virðist vera að gera.


add comment   |  permalink   |   ( 2.9 / 19 )

Leiðindi dagsins eru... 
Wednesday, September 17, 2008, 15:53 - asparagus
Aukakrónur.

Eintóm leiðindi sem fylgja þessu. Gjörsamlega þoli ekki auglýsingarnar og slagorðið "þær koma bara" er aaaalveg slakt.



Þeir sem vinna hjá þessu fyrirtæki ættu hreinlega að skammast sín...
5 comments ( 21 views )   |  permalink   |   ( 3 / 15 )


Back Next