KRiZ Royale
		<managingEditor>KRiZ</managingEditor>
Fjólubláir draumar
			<description><![CDATA[Ég las athyglisverða spurningu (og svar) í bók sem ég á um litinn fjólubláan. Spurningin var eitthvað á þá leið af hverju liturinn fjólublár væri tengdur við kóngafólk. Svarið var nú vegna þess að það litarefni var sjaldgæfast og aðeins þeir ríkustu höfðu efni á fatnaði og klæðum í þeim lit. Það sem mér fannst kannski merkilegra er að sá fjólublái litur (sem nafnið purple kemur frá) er töluvert rauðari en við tengjum við týpískan fjólubláan lit. Það var talað um að fjólublái liturinn væri sami litur og blóð. Svipað og klæðnaðurinn á þessari mynd hér fyrir neðan.
Þetta er í raun litur sem maður myndi líklegast bara kalla dökkrauðan eða eitthvað svipað. Núna er þessi litur kallaður tyrian purple eða imperial purple. Ég nenni ekki að fara frekar út í litapælingar en mér fannst þetta a.m.k. athyglisvert.]]></description>
			<author>KRiZ</author>
I love ROFLcopter
			<author>KRiZ</author>
Rúrik = Rúnk
			<author>KRiZ</author>
Ferðin til Berlínar
			<description><![CDATA[Jæja, kominn tími á einhverja ferðasögu.
Ég og Örvar vorum báðir eitthvað hálfslappir þegar við mættum til vinnu á föstudeginum. Hins vegar duttum við engu síður í stuð á leiðinni til Keflavíkur. Settum á flass-FM og einhverja dúndur slaka músík þar. Svona eitthvað semi Scooter rugl. Voða gaman. Við þutum í gegnum check-in, keyptum okkur opalpela og vodkapela, fengum okkur bjór og hentum okkur inn í vél. Þar byrjuðum við að finna fyrir því að við vorum veikir. Maður sat þarna í einhverju heitt/kalt svitamóki í þrjá tíma. Örvar náði sér í einhverja semi eyrnabólgu eða eitthvað shit og var með einhverjar leiðindar hellur alla ferðina. Ekki töff. 
Það voru þó fagnaðarfundir þegar við hittum Jóa á flugvellinum. Hvíti Opalpelinn var vígður í lestinni og svo opnaðir bjórar heima hjá Jóa. Þetta var dálítið spes íbúð sem hann bjó í. Stigagangurinn var allur út-taggaður og spreyjaður þó svo að hurðin inn í húsið væri læst. Það var svo mjög hátt til lofts þarna, frekar kalt inni enda hitað með rándýru gasi. Þetta var sem sagt bara nokkuð töff. Almennt séð var líka dálítið kalt í Berlín, þó ekki eins kalt og í Liverpool þar sem ég var um daginn. Við kíktum svo út á rallið þetta kvöldið og helsti staðurinn sem við vorum spenntir fyrir var Dr. Pong.
Dr Pong er nokkuð skemmtilegur staður, ekkert sérstaklega stór en bara sæmileg tónlist og svo eitt gimmick. Þar var borðtennisborð, þar sem keppt var á allt kvöldið. Það virkar þannig að það er farið í tvær raðir (sem verða í raun að hring) og svo slær maður eitt högg og fer í hina röðina. Ef maður klikkaði þá datt maður út. Svona hélt þetta áfram þangað til tveir verða eftir og spila um sigurinn (held ég upp í fimm á hefðbundinn borðtennishátt). Við náðum örugglega að keppa 6-9 sinnum en árangurinn lét eitthvað á sér standa. Eftir Dr. Pong þá kíktum við á einhvern annan lítinn stað þar sem minnið byrjaði aaaðeins að bregðast okkur en ég man a.m.k. eftir því að mallafimma var orðin góð hugmynd þá.
Daginn eftir drösluðumst við á fætur í kringum 14 og ætluðum að kíkja á einhver minnismerki og flottar byggingar. Við mæltum okkur mót við Skúla sem hafði örlítið betri hugmyndir en Jói um hvað væri gaman að skoða. Við löbbuðum svona basically niður Unter den Linden og eitthvað aðeins þar í kring og fengum ærlega sögukennslu frá Skúla. Mjög fróðlegt og skemmtilegt. Þegar það byrjaði að kvölda vildu Örvar og Jói kíkja heim í knúsilúr en ég ákvað að vera lengur í bænum og kíkja heim til Skúla og Hildigunnar. Eftir smá chill þar kíktum við Skúli aftur til Jóa þar sem þeir voru að vakna. Við fengum okkur smá bjór og kíktum svo út að borða. Við ákváðum að borða á hórugötu berlínar. Skúli hafði sagt okkur að þær væru auðþekkjanlegar á einkennisbúningum þeirra, sem kom í ljós að var hárrétt. Einkennisbúningur berlínarhóru er í 90% svona: Einhver hvítur klæðnaður (yfirleitt stígvél og/eða pils), korselett (núna bara yfir úlpunni!) og svo magataskan (fannypack). Við duttum á einhvern indverskan stað þarna rétt eftir miðnætti og gúffuðum í okkur mat og bjór. Eftir þetta gekk okkur hálfilla að finna okkur einhver stað til að fá okkur einn eða tvo bjóra. Duttum inn á lítinn stað sem kom í ljós að var hommastaður (og þá svona frekar lítill knæpulegur eldri homma staður... ekki töff). Við enduðum því bara á því að kíkja aftur heim í drykkju áður en við færum á Panorama.
Panorama er einn þekktasti klúbburinn í Berlín og er í rauninni tveir klúbbar, Panorama og Berghain, inni í einu húsnæði. Þetta er gamalt verksmiðjuhúsnæði (var Powerstation áður). Berghain er homma-technohlutinn og er með aðaldansgólfið á meðan Panorama er meira house/electro hluti og aðeins minni. Upprunalega ætluðum við að mæta þarna í kringum miðnætti en okkur var bent á að það væri ekki málið, við ættum frekar að mæta í kringum 4. Ég og Jói mættum þarna um kl. 4 og spurðum gaur í röðinni hvað hann reiknaði með langri bið. Hann svaraði "tja, svona 2 tímar kannski, við verðum komnir inn kl. 6". Biðin reyndist þó skemmri og við duttum inn uppúr 5. Ég tók eftir því að headlinerinn okkar átti að spila frá kl. 7-10. Svo er í raun mesta brjálæðið held ég bara um sunnudagseftirmiðdaginn, þegar t.d. Josh Wink átti að taka syrpu kl. 17. Jói dugði til um 9 og ég ákvað að drösla mér út af klúbbnum kl. 14. Nokkuð gott að taka 9 klukkutíma djamm þarna inni.
Þegar ég kom svo heim hringdi ég í strákana til að opna fyrir mér en þeir durgarnir svöruðu ekki, jafnvel þó ég náði að redda mér inn á ganginn og bankaði hressilega á dyrnar. Ég var byrjaður að labba niður í bæ þegar Örvar hringdi loks og ég gat komið. Ég hafði engan tíma til að leggja mig heldur drifum við okkur beint út og á einhvern pöbb til að horfa á Liverpool - Manchester City spila. Ég var nokkuð hress framan af en byrjaði svo að finna veeeerulega fyrir þreytu eftir burgerinn minn þarna. Við drösluðum okkur svo heim þar sem ég lagði mig aðeins. 
Á sunnudagskvöldinu vorum við aðallega bara í einhverju chatti heima hjá Jóa og vorum að vanda langt á eftir áætlun varðandi kvöldmat. Duttum inn á White Trash staðinn rétt upp úr miðnætti. Þar fékk maður sér white trash burger með fuck you fries. Góður húmor á matseðlinum hjá þeim. Voru að hrauna yfir hippa en sögðust samt geta gert veggie burgera fyrir þá og eitthvað þannig. Þar var líka í gangi frekar spes show þar sem gaur með einglyrni var uppi á sviði og fólk gat beðið hann um að syngja einhver lög frá þriðja áratug seinustu aldar. Dáldið samt svona 'you had to be there" pakki. Eftir mat þarna kíktum við svo á staðinn 8mm þar sem við fengum okkur nokkra bjóra og spjölluðum. Sá staður er víst dálítill Íslendingastaður og var dáldið svona artyprumpfret. Varpað upp á vegg myndum eins og "La Dolce Vita" og "Teenage Zombies". 
Mánudagurinn fór svo í ósköp lítið. Jói Póker og Örvar sváfu enn meira og svo kíktum við upp í sjónvarpsturninn þarna í Berlín (upp í rúmlega 200 metra) og skoðuðum Berlín að ofan. Góður endir á góðri ferð. Við veikindapésarnir tókum svo lestina og flugum heim í svitabaði og eyrnabólgu.]]></description>
			<category>djamm</category>
			<author>KRiZ</author>
hundrað armbeygjur
			<author>KRiZ</author>
Epic win í póker...
			<description><![CDATA[Ég var í póker á miðvikudaginn og vann á svo epic hátt að ég varð að skrifa um það. Ég mætti á fyrsta pókermót Dauðaspaðans sem gestaspilari. Gekk alveg ágætlega frá byrjun og vann stóru hendurnar sem ég fór inn í. Svo enduðu ég og Haukur tveir eftir. Eitthvað gekk þetta fram og til baka hjá okkur þangað til hann fór loksins all-in á hönd sem hann fékk. 
Hann var með ás-sjöu en ég með ás-kóng. Hann ekki ánægður og vonast eftir sjöu.
Floppið kemur: Ás, tía, þristur. Ekki hjálpar það honum.
Tía kemur í turn-inu. Staðan: Ás, tía, þristur, tía. Við báðir segjum ennþá 'ekki tía og ekki sjöa'.
Riverið kemur... sjöa! Fokk! Við hendum spilunum frá okkur og sættum okkur við að hann vann. Ég klæði mig í jakkann og er að fara heim þegar Gaui, sem hélt giggið, kom af klósettinu og sagði: "bíddu strákar, voru ekki tvær tíur í borðinu? Þá er þetta split pot.."
Ég hugsa mig um og geri mér grein fyrir því að þetta var ekki split pot, heldur vann ég höndina. Vúhú!
Sem betur fer vorum við ekki búnir að ganga frá spilapeningunum svo við gátum sest niður og haldið áfram. Ég endaði svo á því að vinna þetta. Fokking sweet.
			<author>KRiZ</author>
Stapp
			<description><![CDATA[Ég var aðeins að pæla. Þegar ég er að labba úti í snjónum þó er ég með svona kæk sem ég næ ekki að losna við. Þegar ég er búinn að labba á snævi þaktri jörðu og kem svo að hluta með engum snjó á, þá stappa ég alltaf til að ná snjónum af skónum. Sama þó að þessi auði blettur sé bara nokkrir metrar. Algjörlega tilgangslaust, en samt gerir maður þetta af einhverri ástæðu. Ég líka tekið eftir því þegar aðrir gera þetta. Get alveg trúað því að þetta sé issue hjá fleirum.
Anyways, pælingar hættar...]]></description>
			<author>KRiZ</author>
Draugatitringur
			<description><![CDATA[Shit, ég er alveg að drulla upp á bak hérna. Ekki nógu mikil hressleiki í gangi hér!
Anyways, ég var að pæla í því hvað það er fyndið þegar maður fær svona draugatitring. Þá er ég að tala um það að maður heldur að síminn manns sé byrjaður að hringja (titra). Ég hef oft lent í þessu og fannst það einmitt sérstaklega fyndið þegar ég fór með hendina og leitaði eftir símanum þegar ég var í sundi. Frekar spes. Annars lendi ég alveg fáránlega oft í þessu við einar ákveðnar aðstæður, þegar ég er nýsestur í bílinn minn. Alveg furðulegt, næstum alltaf þegar ég er sestur upp í bíl finnst mér eins og ég finni að síminn sé að byrja að hringja.
Annars er svona það helsta á döfinni hjá mér að ég og Þorleifur vinnufélagi minn erum að fara í fótboltaferð til Liverpool um mánaðarmótin. Þar erum við að sjá Liverpool og Chelsea spila á Anfield. Ég var svona að vonast til þess að Chelsea myndi vinni Man Utd um helgina svo þetta yrði toppslagur, en svo fór nú ekki. Hins vegar var verið að bjóða okkur að sjá annan leik í leiðinni. Við stukkum á það og erum því að sjá Man Utd - Everton á Old Trafford. Maður nær því að sjá þrjú efstu liðin í deildinni þessa helgi. Það verður sweet.
Svo snurrar maður eins og brjálaður í min Skalle þegar Familjen kemur til landsins.]]></description>
			<author>KRiZ</author>
Kick the burger
			<description><![CDATA[Magnús benti mér á þetta video og er það alltaf að virka betur og betur á mig. Norðmenn voru sem sagt hip og kúl árið 1993. Checkit!
Move the burger to the moon!
			<author>KRiZ</author>
Fail
			<description><![CDATA[Ég er búinn að vera að skemmta mér konunglega við að skoða síðuna failblog.org.
Mæli algjörlega með henni.
Annars var að koma út nýtt lag með félögunum í Lonely Island. Jizz in my Pants. Checkit!
			<category>tónlist</category>
			<author>KRiZ</author>